Bíó og sjónvarp

Halldóra í skýjunum að Halla verði ekki leikin af kynbombu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jodie Foster mun leika Höllu sem Halldóra Geirharðsdóttir gerði svo vel í kvikmyndinni Kona fer í stríð.
Jodie Foster mun leika Höllu sem Halldóra Geirharðsdóttir gerði svo vel í kvikmyndinni Kona fer í stríð.
Bandaríska kvikmyndagerðarkonan Jodie Foster mun leikstýra og fara með aðahlutverkið í bandarískri endurgerð myndarinnar Kona fer í stríð. Greint er frá þessu á vef Deadline en Kona fer í stríð er mynd leikstjórans Benedikts Erlingssonar þar sem Halldóra Geirharðsdóttir fer með aðalhlutverkið.

Halldóra Geirharðs var á línunni í Bítinu í morgun.

„Jodie Foster, hana langar að vera ég,“ sagði Halldóra til að byrja með og er hún greinilega mjög spennt fyrir þessu öllu.

„Þegar ég las þetta handrit á sínum tíma hugsaði ég að einhver stórleikkona í Hollywood myndi vilja kaupa það og leika í myndinni því það eru svo sjaldan svona stórar rullur fyrir  leikkonur. Svo var ég alltaf að hugsa hver myndir vilja kaupa þetta, því ég var alveg með það á hreinu að það myndi einhver ger það. Svo er ég svo glöð að það var Jodie því hún er sú eina sem er ekki svona  kynbomba.“

Ekkert kynlíf og enginn deyr

Halldóra segir að það passi einstaklega vel við söguna hvað Jodie Foster er alvöru.

„Það getur verið mjög þreytandi fyrir leikkonur að sjá bíómyndir með góðum leikkonum en alltaf þurfa þær að vera eitthvað voða sexý, því það á ekkert alltaf við. Í þessari sögu er ekkert ofbeldi, það deyr enginn og það er ekkert kynlíf. Samt er þetta geggjað spennandi mynd og skemmtileg.“

Hún segir að viðræður við Jodie Foster hafi hafist í byrjun nóvember en þá hafi Benedikt Erlingsson sent Halldóru mynd af sér með nýju bestu vinkonu hans. Þá var Benni staddur í Los Angeles og ræddi við Jodie Foster.

Hér að neðan má hlusta á viðtalið við Halldóru en þar talar hún einnig um hvernig það hafi verið að leika Höllu. 


Tengdar fréttir

Kona fer í stríð verðlaunuð af Evrópuþinginu

Benedikt Erlingsson leikstjóri hlaut í dag LUX kvikmyndaverðlaun Evrópuþingsins við hátíðlega athöfn í Evrópuþinginu í Strassborg fyrir kvikmynd sína, Kona fer í stríð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.