Forysta City orðin fimmtán stig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 31. janúar 2018 22:00 Fernandinho fagnar marki sínu í kvöld. vísir/getty Manchester City tók enn eitt skrefið í átt að meistaratitlinum í ensku úrvalsdeildinni er liðið vann öruggan sigur á West Brom, 3-0, í kvöld. Á sama tíma töpuðu næstu lið á eftir, Manchester United og Chelsea, leikjum sínum og er nú forysta City á toppnum orðin fimmtán stig þegar þrettán umferðir eru eftir af tímabilinu. Fernandinho, Kevin De Bruyne og Sergio Agüero skoruðu mörk City í kvöld en Raheem Sterling lagði upp síðari tvö mörk City í kvöld. City hefur tapað aðeins einum deildarleik í vetur og er með markatöluna 73-18 - ekkert lið hefur skorað fleiri mörk og ekkert hefur fengið færri á sig. Yfirburðir liðsins virðast algerir þetta tímabilið. West Brom náði reyndar aðeins einu skoti á markið í kvöld en það kom á 88. mínútu. Daniel Sturridge átti það en hann er í láni hjá félaginu frá Liverpool og þreytti frumraun sína í kvöld. West Brom er neðst í deildinni og þremur stigum á eftir næsta liði og fjórum stigum frá öruggu sæti. Enski boltinn