Andlit herferðarinnar er Christy Turlington, og segist hún aldrei hafa lært jafn mikið um sjálfbær efni eftir að hún byrjaði að vinna með H&M. ,,Svo er línan líka svo kvenleg og glæsileg," segir Christy.
Glamour fór til Stokkhólms í janúar og bar línuna augum, þar sem við getum sagt að hún er með glæsilegri Conscious línum sem við höfum séð. Efnin, mynstrin og flíkurnar eru kvenlegar og rómantískar, og er alltaf eitthvað sérstakt við hverja flík. Línan sækir innblástur til heimilis sænsku listamannanna Karinar og Carls LArsson, sem uppi voru á 19.öld og í upphafi 20. aldar. Útkoman voru skemmtileg mynstur og áhugaverðar litasamsetningar.
Þær sem eru í brúðarkjólahugleiðingum verða væntanlega fegnar yfir því að línan inniheldur fallegan brúðarkjól, sem endurunnin er úr gömlum fiskinetum.
Glamour er með augastað á þónokkrum flíkum úr línunni, en línan mun kom til að fást frá 19. apríl 2018. Hér koma fyrstu myndir.





