Lífið

Áttan svarar gagnrýni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sonja og Egill er klár í slaginn.
Sonja og Egill er klár í slaginn.
Þau Sonja Valdin og Egill Ploder stíga á sviðið í Laugardalshöllinni á laugardagskvöldið og taka þátt í úrslitum Söngvakeppninnar árið 2018.

Þá verður framlag Íslands í Eurovision valið en lokakeppnin fer fram í Lissabon í maí.

Áttan flytur lagið Here for You en dúettinn hefur fengið yfir sig töluverða gagnrýni síðustu daga og fannst mörgum þau Egill og Sonja nokkuð fölsk á seinna undanúrslitakvöldinu.

Nú hafa þau svarað þeirri gagnrýni á Facebook-síðu Áttunnar og standa greinilega æfingar yfir á fullu. Bæði segjast þau hafa fylgst með umræðunni á netinu og ætla þau bæði að bæta sig fyrir laugardagskvöldið. Áttumenn segjast geta gert betur. 

Hér að neðan má sjá flutning þeirra frá því í Háskólabíói á dögunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.