Segja frumvarp Brynjars enn eitt vopnið fyrir ofbeldismenn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. október 2018 12:41 156 skrifuðu undir yfirlýsinguna í morgun og fleiri hafa bæst við að sögn Sigrúnar Sifjar. Vísir/GETTY
Á annað hundrað konur gera í yfirlýsingu þá kröfu til alþingismanna að þeir taki skýra afstöðu á móti ofbeldi gegn konum og börnum eða geri skýra grein fyrir afstöðu sinni. Hópurinn Aktívistar gegn nauðgunarmenningu sendu þá kröfu á alþingismenn í morgun en tilefnið er frumvarp Brynjars Níelssonar og fleiri sjálfstæðismanna þess efnis að tálmun verði gerð refsiverð. Viðurlög verði allt að fimm ára fangelsi. „Frumvarp um refsilöggjöf í umgengnismálum er ekki lausn á vel skilgreindum vanda. Frumvarpið er enn eitt kúgunartækið í þágu ofbeldismanna og gefur þeim gerræðislegt vald í lífi barna og kvenna. Þið kallið þetta frumvarp til breytinga á barnaverndarlögum. Við köllum þetta frumvarp til laga gegn vernd barna,“ segir í yfirlýsingu hópsins. Sigrún Sif Jóelsdóttir, einn aktívistanna, segir að tölvupóstur hafi verið sendur á alla þingmenn snemma í morgun. Þrír hafi brugðist strax við. „Andrés Ingi VG, Björn Leví Pírati og Rósa Björk. Aktívistar gegn nauðgunarmenningu eru ánægðir með það. Andrés spurði hvort yfirlýsingin hefði ekki örugglega verið send á Nefndasvið, sem verður gert í framhaldinu. Rósa Björk kemur með afdráttarlausan stuðning við þessa höfnun og bendir á að hún mótmælti líka þegar frumvarpið kom fyrst - og sendir baráttukveðjur. Björn Leví minntist á nýlegar tillögur Pírata til bættrar stjórnsýslu í þessum málum,“ segir Sigrún Sif Jóelsdóttir, einn aktívistanna.Yfirlýsinguna og undirskriftir má sjá hér að neðan. Við finnum okkur knúnar til að leggja fram eftirfarandi yfirlýsingu og gerum þá kröfu til allra sem á Alþingi sitja að þau taki skýra afstöðu á móti ofbeldi gegn konum og börnum ellegar geri skýra grein fyrir afstöðu sinni. Hvenær þykir ykkur nóg komið? Hafa frásagnir þolenda af ofbeldi í nánum samböndum og fjölskyldum ekki farið nógu hátt til að ná athygli ykkar? Hversu hávær og skerandi þurfa sársaukaópin að vera til að þau komi ykkur við? Hversu mörg líf þarf að leggja í rúst og hversu marga þarf að brjóta niður og kúga til að þið opnið augun? Hið opinbera tekur nú þegar þátt í kerfislægu niðurbroti og ofbeldi með ákvarðanatöku sinni og fremur mannréttindabrot í skjóli valds. Hversu oft þarf þetta frumvarp sem vinnur augljóslega gegn hag allra barna og vinnur beint gegn þolendum ofbeldis, að vera lagt fram áður en þið áttið ykkur á alvarleika málsins? Við segjum að nóg sé komið. Við teljum það lágmarkskröfu að þau sem sitja á ákvörðunarstól þingsins horfist í augu við afleiðingarnar sem frumvarp sem þetta myndi hafa næði það fram að ganga. Við teljum mikilvægt að þið gerið ykkur grein fyrir hvað lögfesting á skömmun foreldris (móður) raunverulega þýðir fyrir börn og að þið áttið ykkur á því hversu skaðleg viðhorf frumvarpið endurspeglar. Börn sem af einhverjum ástæðum njóta ekki umgengni við annað foreldri sitt eru bersýnilega ekki betur sett með því að hinu foreldrinu sé varpað í fangelsi. Þá er ríkið sjálft að svipta barnið réttinum á umgengni við það foreldri sem afplánar refsivist og jafnvel svipta barnið eina foreldrinu sem verndar það. Þessi hugsun er ekki bara órökrétt heldur er hún í hreinni mótsögn við alla hugsun að baki barnalögum, barnaverndarlögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kerfið í dag verkar sem vogarafl fyrir ofbeldismann sem reiðir til höggs. Kerfið sem segist ætla vernda fyrir ofbeldi bregst þolendum ofbeldis hvað eftir annað. Frásagnir þeirra sem hafa flúið heimilisofbeldi og þurfa að reiða sig á réttarákvörðun kerfisins vegna barna sinna eru skýr vitnisburður um það. Þögn ykkar er vopn í höndum ofbeldismanna. Skilningsleysi og hundsun á hættulegum aðstæðum þolenda ofbeldis er ofin inn í viðhorf kerfisins og mæður og börn sem eru þolendur heimilisofbeldis verða því fyrir ofbeldi úr öllum áttum. Þau verða fyrir ofbeldi heima hjá sér og einnig ofbeldi af hálfu ríkisvaldsins. Vanmátturinn verður alger þegar það er yfirvaldið, ríkisvaldið, sem starfar í skjóli laga sem tekur afstöðu með gerandanum, staðfestir hans málstað og ljáir honum lögmæti og tekur þannig beinan þátt í ofbeldinu. Þolendur ofbeldis eru algjörlega berskjaldaðir. Frumvarp um refsilöggjöf í umgengnismálum er ekki lausn á vel skilgreindum vanda. Frumvarpið er enn eitt kúgunartækið í þágu ofbeldismanna og gefur þeim gerræðislegt vald í lífi barna og kvenna. Þið kallið þetta frumvarp til breytinga á barnaverndarlögum. Við köllum þetta frumvarp til laga gegn vernd barna. Það ætti að vera augljóst að það er ekki börnum fyrir bestu að foreldri þess sé refsað með fangelsisvist fyrir að uppfylla forsjárskyldu sína;fyrir að vernda þau fyrir ofbeldi og vanvirðandi háttsemi. Sýslumaður sem virðist enn taka geðþóttaákvarðanir í umgengnismálum þvert á skýrslur og gögn sem staðfesta ofbeldi telur frásagnir af ofbeldi og meint neikvætt viðhorf móður vegna þess, skaða börn meira en staðfest ofbeldi samkvæmt Barnahúsi, lögregluskýrslum, greinagerðum meðferðaraðila, fagfólks, barnaverndarmálum, áverkavottorðum og svo framvegis. Þolendur ofbeldis fá þau skilaboð að það skipti engu máli þó brotið sé gegn þeim. Óréttlátt viðhorf gagnvart þolendum í umgengnismálum gerir þeim ókleift að vernda börn sín fyrir ofbeldi vegna þess að „réttur barnsins til að umgangast báða foreldra“ er látinn trompa rétt barnsins til öryggis. Inngrip stjórnvalds í umgengni barna við foreldra sína þarf fyrst að vera réttmætt áður en gripið er til aðgerða til að refsa eða þvinga þá sem brjóta umgengnisrétt. Þegar stjórnvöld líta ekki til gagna frá Barnahúsi um kynferðisofbeldi á barni, til opinna barnaverndarmála, mats fagaðila og vilja barnanna sjálfra í réttarákvörðun sinni eru þau einfaldlega ekki að viðurkenna ofbeldi á barni. Vinnuregla barnaverndar er sú að kanna ekki aðstæður á heimili umgengnisforeldris sérstaklega. Ekki er talin þörf á inngripi eða könnun barnaverndar ef talið er að forsjáraðili (móðir) verndi barnið frá ofbeldi eða vanvirðandi háttsemi umgengnisforeldris. Þegar réttarákvörðun vísar upplýsingum um ofbeldi á barni eða fjölskyldu frá með þeim hætti sem hún gerir, barnavernd kannar ekki aðstæður barns á heimili umgengnisforeldris og forsjárforeldri er síðan dæmt í fangelsi fyrir að hafna umgengnisrétti til verndar barninu. Þá hafa stjórnvöld brugðist barninu fullkomlega í nafni jafns réttar umgengnisforeldris (föður). Réttur barns er endurskilgreindur sem réttur föður og glæpur móður. Ef það er raunverulegur vilji stjórnvalda að uppræta heimilisofbeldi og standa vörð um hagsmuni barna þá er það algjört frumskilyrði að ofbeldinu sé ekki afneitað, afsakað, réttlætt eða endurskilgreint á kostnað þolenda þegar það á sér stað. Á meðan kerfið kemur ekki til móts við þolendur og tekur ekki á því ofbeldi sem er til staðar þá hefur frumvarp um refsingar á forsjárforeldrum engan tilgang annan en að ýta undir kúgun og ofbeldi. Refsivist vegna brots á umgengnissamningi sem skilgreint er með fordómafullri ákvörðunatöku út frá mýtunni um vondu mömmuna sem ásakar pabbann ranglega fjallar ekki um réttlæti, heldur hefnd og valdbeitingu. Aðeins morð á foreldri í aðstæðum sem þessum er nær fullkomnun á ofbeldinu en fangelsun. Tími afstöðu-og ábyrgðarleysis gagnvart ofbeldi er liðinn og við getum ekki lengur forðast það að horfast í augu við raunveruleikann. Nú er tækifærið til að taka afdráttarlausa afstöðu með þolendum og fyrsta skrefið er að mótmæla þessu frumvarpi gegn vernd barna kröftuglega. Þess vegna krefjumst við svara frá öllum á þingi. Ofbeldi í fjölskyldum er ekki einkamál. Þið sem sitjið á valdastóli, þið hafið ákvörðunarvaldið. Standið með þolendum ofbeldis. Við bíðum svara frá ykkur öllum: Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Andrés Ingi Jónsson, Anna Kolbrún Árnadóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Ágúst Ólafur Ágústsson, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Einar Daðason, Bergþór Ólason, Birgir Ármannsson, Birgir Þórarinsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Bjarni Benediktsson, Björn Leví Gunnarsson, Guðjón S. Brjánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Guðmundur Andri Thorsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Halldóra Mogensen, Hanna Katrín Friðriksson, Haraldur Benediktsson, Helga Vala Helgadóttir, Helgi Hrafn Gunnarsson, Inga Sæland, Jón Þór Ólafsson, Jón Steindór Valdimarsson, Karl Gauti Hjaltason, Katrín Jakobsdóttir, Kolbeinn Óttarsson Proppé, Kristján Þór Júlíusson, Lilja Alfreðsdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Líneik Anna Sævarsdóttir, Logi Einarsson, Oddný G. Harðardóttir, Ólafur Þór Gunnarsson, Ólafur Ísleifsson, Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Sigríður María Egilsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigurður Páll Jónsson, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Smári McCarthy, Steingrímur J. Sigfússon, Steinunn Þóra Árnadóttir, Svandís Svavarsdóttir, Teitur Björn Einarsson, Vilhjálmur Árnason, Willum Þór Þórsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson, Þorsteinn Víglundsson, Þórdís, Kolbrún R. Gylfadóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir Undirskriftir: 1. Sigrún Sif Jóelsdóttir 2. Helga Vala Garðarsdóttir 3. Guðrún Línberg Guðjónsdóttir 4. Elísabet Ýr Atladóttir 5. Þórhildur Sif Þórmundsdóttir 6. Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir 7. Rut Einarsdóttir 8. Kristín Inga Jespersen 9. Sara Mansour 10. Anna Jóna Heimisdóttir 11. Hildur Rós Guðbjargardóttir 12. Hrafndís Katla Elíasdóttir 13. Svava Björg Mörk 14. Elfa Kristín Jónsdóttir 15. Nína Vigdísardóttir Björnsdóttir 16. Anna Sigrún Benediktsdóttir 17. Eva Lilja Rúnarsdóttir 18. Andrea Eyland 19. Hjördís Svan Aðalheiðardóttir 20. Candice Michelle Goddard 21. Helga Gestsdóttir 22. Sólborg Birgisdóttir 23. Inga María Vilhjálmsdóttir 24. Helga Ólöf Þórdísardóttir 25. Ásta Knútsdóttir 26. Fríða Bragadóttir 27. Halldóra Jónasdóttir 28. Berglind K.Þórsteinsdóttir 29. Erna Dýrfjörð Stefánsdóttir 30. Erla Guðrún Gísladóttir 31. Sigrún Fanney Sigmarsdóttir 32. Hugrún Jónsdóttir 33. Sunna Ýr Einarsdóttir 34. Ingibjörg Sigurðardóttir 35. Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir 36. Jóhanna Margrétardóttir 37. Margrét Birna Henningsd. Jakob 38. Olga Björk Ólafsdóttir 39. Sunna Björg Símonardóttir 40. Ásta Þórisdóttir 41. Ninna Karla Katrínardóttir 42. Hildur Sigurðardóttir 43. Helga Hrönn Nordfj. Þórðardóttir 44. Heiðrún Arna Friðriksdóttir 45. Sigríður Ásta Árnadóttir 46. Ástrós Hreinsdóttir 47. Harpa Hjartardóttir 48. Kristín Vilhjálmsdóttir 49. Harpa Oddbjörnsdóttir 50. Hildur Björk Hörpudóttir 51. Fanný Rósa Bjarnadóttir 52. Aþena Mjöll Pétursdóttir 53. Guðný Elísa Guðgeirsdóttir 54. Áslaug Hauksdóttir 55. Guðrún Hulda Guðmundsdóttir 56. Hafdís Arnardóttir 57. Freydís Dögg Steindórsdóttir 58. Steinunn Ýr Einarsdóttir 59. Tinna Björk Pálsdóttir 60. Tanja M. Ísfjörð Magnúsdóttir 61. Elín Jóhanna Bjarnadóttir 62. Kristín Th. Hafsteinsdóttir 63. Vibeke Svala Hafsteinsdóttir 64. Eva Dagbjört Óladóttir 65. Nótt Aradóttir 66. Margrét Baldursdóttir 67. Sædís Hrönn Samúelsdóttir 68. Hildur Sigurðardóttir 69. Bjarndís Helga Tómasdóttir 70. Kristín Erla Benediktsdóttir 71. Frigg Thorlacius 72. Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir 73. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir 74. Ragna Björk Ragnarsdóttir 75. Signý Rut Kristjánsdóttir 76. Halldóra Hafsteinsdóttir 77. Sigrún Sól Ólafsdóttir 78. Freyja Vals Sesseljudóttir 79. Sigríður Sturlaugsdóttir 80. Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar 81. Hildigunnur Rúnarsdóttir 82. Elva Dögg Blumenstein 83. Hulda Hákonardóttir 84. Arna Björk Pétursdóttir 85. Sólrún Einarsdóttir 86. Guðrún Ágústa Kjartansdóttir 87. Benedikta Bergmann Ketilsdóttir 88. Kiana Sif Limehouse 89. Sunna Kristinsdóttir 90. Sigurbjörg Magnúsdóttir 91. Brynhildur Björnsdóttir 92. Margrét Heiður Jóhannsdóttir 93. Erla Einarsdóttir 94. Birgitta Sigurðardóttir 95. Gunnhildur Vala Valsdóttir 96. Vega Rós Guðmundsdóttir 97. Steinunn Ólöf Hjartardóttir 98. Emma Ásu Árnadóttir 99. Emma Kamilla Finnbogadóttir 100. María Lind Oddsdóttir 101. Stella Beekman 102. Anna Þórey Arnardóttir 103. Sigríður Björnsdóttir 104. Margrét S Benediktsdóttir 105. Elsa Björk Harðardóttir 106. Særún Magnea Samúelsdóttir 107. Eva Hulda Ívarsdottir 108. Kristín Margrét Ingibjargardóttir 109. Eyrún Eva Gunnarsdóttir 110. Hulda Dögg Georgsdóttir 111. Hildur Helga Sigurðardóttir 112. Tinna Eik Rakelardóttir 113. Birna Sæunn Jónsdóttir 114. Fanney Gunnarsdóttir 115. Harpa Lind Björnsdóttir 116. Anna Íris Pétursdóttir 117. Þorbjörg Signý Ágústsson 118. Þuríður Ósk Gunnarsdóttir 119. Klara Þórhallsdóttir 120. Steinunn Anna Radha Másdóttir 121. Helga Dís Árnadóttir 122. Þórhildur Sæmundsdóttir 123. Margrét Pétursdóttir 124. Steinunn S. Ólafardóttir 125. Guðlaug Marín Pálsdóttir 126. Sunna Rut Stefánsdóttir 127. Sigríður Nanna Gunnarsdóttir 128. Steinunn Helga Sigurðardóttir 129. Karen Linda Eiríksdóttir 130. Karen Dögg Bryndísardóttir Karlsdóttir 131. Ragna Björg Björnsdottir 132. Guðrún Kristjánsdóttir 133. Heiða Sigurðardóttir 134. Erna Sigrún Hallgrímsdóttir 135. Erla Kr Bergmann 136. Sigrún Ósk Arnardóttir 137. Hafdís Erla Árnadóttir 138. Drífa Pálín Geirs 139. Berglind Ósk Pétursdóttir 140. Þórey Guðmundsdóttir 141. Erla Elíasdóttir Völudóttir 142. Lilja Dröfn Dagbjartsdóttir 143. Magnea Jónasdóttir 144. Edith Soffía Bech 145. Lúcía Sigrún Ólafsdóttir 146. Berglind Rós Gunnarsdóttir 147. Björg Torfadóttir 148. Jenný Heiða Zalewski 149. Linda Björk Einarsdóttir 150. Aðalheiður Jóhannsdóttir 151. Hera Hansen 152. Anna Lind Vignisdóttir 153. Halldóra M. Baldursdóttir 154. Eva Björk Sigurðardóttir 155. Anna Lotta Michaelsdóttir 156. Halla Björg Randversdóttir
Mest lesið Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Komu hesti til bjargar úr gjótu Innlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Innlent Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Erlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Fleiri fréttir Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Sjá meira