Innlent

Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2

Skattbreytingar sem tóku gildi um áramótin auka ráðstöfunartekjur hátekjuhópa sexfalt meira en lág- og millitekjufólks. Alþýðusamband Íslands segir kerfið ýta undir ójöfnuð. Fjallað verður nánar um þetta í fréttum Stöðvar tvö klukkan 18:30.

Þar skoðum við líka sautján metra Langreyði sem rak á land rétt utan við Sandgerði í gær og heimsækjum einlægan Titanic-aðdáanda sem skartar meðal annars Titanic húðflúri á brjóstkassanum og trúlofaði sig á söguslóðum skipsins á Norður-Írlandi.

Þetta og margt fleira í fréttum Stöðvar tvö í opinni dagskrá klukkan 18.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×