Hughes strunsaði út af blaðamannafundi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 1. janúar 2018 21:15 Það er heitt undir sæti Mark Hughes þessa dagana vísir/getty
Mark Hughes strunsaði út af blaðamannafundi eftir tap Stoke gegn Newcastle á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Leikurinn fór 1-0 fyrir Newcastle, en Ayoze Perez skoraði sigurmarkið þegar 17 mínútur lifðu af leiknum. Hughes hefur nú tapað sjö af síðustu tíu leikjum sínum og Stoke er í 16. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá fallsæti. Á blaðamannafundi eftir leikinn varði Hughes breytingarnar á liðinu sem hann gerði fyrir leikinn gegn Chelsea á laugardaginn. Hann hafði þó áður viðurkennt að hafa hvílt leikmenn svo þeir yrðu tilbúnir í leikinn í dag. Þrátt fyrir það byrjaði hinn 18 ára Tom Edwards í varnarlínu Stoke í dag. „Ég gerði breytingar afþví ég var með fjóra varnarmenn heila. Þetta hefði verið varnarlínan sama hvaða menn væru fyrir framan þá. Ég var með átta erlenda leikmenn þennan dag,“ sagði Hughes. „Ef við hefðum verið nær Chelsea í seinni hálfleik þá hefðu þeir sem sátu á bekknum fengið tækifæri. Eins og þetta var var leikurinn nú þegar tapaður.“ Stoke tapaði leiknum á Stamford Bridge 5-0. Hughes gekk til búningsherbergja í dag undir áköllum frá stuðningsmönnum liðsins að hann yrði rekinn. Hann gat þó ekki séð að það væri neinn betri en hann í stöðuna. „Hver annar ætti að gera það? Ég þekki leikmannahópinn og hef náð árangri hérna. Leikmennirnir eru pirraðir og vonsviknir, en það er vegna þeirra háu staðla sem ég hef sett,“ sagði Mark Hughes.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hughes ákvað að hvíla lykilmenn gegn Chelsea Mark Hughes mætti ekki með sitt sterkasta lið til Lundúna í gær því hann lagði meiri áherslu á leikinn við Newcastle á morgun, nýársdag. 31. desember 2017 12:30 Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira
Hughes ákvað að hvíla lykilmenn gegn Chelsea Mark Hughes mætti ekki með sitt sterkasta lið til Lundúna í gær því hann lagði meiri áherslu á leikinn við Newcastle á morgun, nýársdag. 31. desember 2017 12:30