Tölfræðin sýnir að de Gea er bestur Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. janúar 2018 11:00 David de Gea ver með fætinum frá Alexis Sánchez, aðeins nokkrum sekúndum eftir að hann varði frá Alexandre Lacazette í leik Arsenal og Manchester United í desember. De Gea fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína í þeim leik. vísir/getty
David de Gea er besti markvörður ensku úrvalsdeildarinnar. Þessari staðhæfingu er oft hent fram af hinum ýmsu fótboltaáhugamönnum og sérfræðingum. Nú hefur það hins vegar verið staðfest. Ekkert lið í deildinni hefur fengið á sig færri mörk en Manchester United, 16 talsins. De Gea hefur verið í markinu í öllum 23 leikjum United og af þeim hélt hann hreinu í 13 leikjum. Chelsea hefur einnig aðeins fengið á sig 16 mörk og þar stendur Thibaut Courtois í markinu í öllum leikjum. Hann hefur haldið hreinu í 12 leikjum. Hins vegar hefur tölfræðifyrirtækið Opta tekið saman að de Gea hafi komið í veg fyrir augljóst mark 13,8 sinnum á meðan Courtois er aðeins með 0,3 augljós mörk varin. Formúlan sem Opta notar reiknar líkur þess að skot endi í markinu miðað við tegund stoðsendingar, fjarlægð frá marki, hvort skotið hafi verið með skalla, hvort um dauðafæri hafi verið að ræða og þar eftir götunum. Miðað við þessa útreikninga Opta er de Gea lang besti markmaður deildarinnar, fengið á sig 16 mörk og komið í veg fyrir 13,8 augljós mörk. Næstur á eftir honum kemur Nick Pope, maðurinn sem ver mark Burnley eftir að Tom Heaton meiddist í ágúst. Pope hefur spilað 20 leiki og aðeins fengið á sig 16 mörk. Hann hefur komið í veg fyrir 8,1 augljóst mark. Versti markmaður deildarinnar er Ben Heaton, markmaður West Brom. Hann hefur aðeins fengið 21 skot á sig sem samkvæmt formúlunni ætti að vera augljóst mark. Hins vegar hefur hann fengið á sig 29 mörk, sem þýðir að undir hversu mörk augljós mörk hann hefur stoppað er hann í mínus, -8,2. Bestu markmennirnir tveir, de Gea og Pope, mætast á morgun, laugardag, klukkan 15:00 og er leikurinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.xG conceded stendur fyrir þau skot sem markmaður hefur fengið á sig sem tölfræðiformúla Opta telur vera augljóst mark. Dragið fjölda marka sem markmaður fær á sig frá xG conceded og út kemur fjöldi augljósra marka sem hann kemur í veg fyrir (xG prevented)mynd/skysports
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira