Hvaða líkamsrækt er heitust árið 2018? Ásta Hrafnhildur Garðarsdóttir skrifar 12. janúar 2018 13:00 Hrafnhildur Halldórsdóttir einkaþjálfari leggur áherslu á að fólk setji sér raunhæf markmið í líkamsræktinni.
Hvort sem undir er stóll eða dívan þá vita allir að leikfimi er heilsubót. Fjölmargt er í boði fyrir þá sem vilja bæta heilsu sína og taka upp nýjan lífsstíl, allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. En það er ekki nóg að reima á sig skóna og hendast í spandex, það þarf að huga að ýmsu til að ná góðum árangri. Hrafnhildur Halldórsdóttir, einkaþjálfari í World Class, hefur mikla reynslu af því að taka á móti fólki sem er að stíga sín fyrstu skref í líkamsrækt. „Ég mæli með því að fólk fái sér einkaþjálfara þegar það er að koma í fyrsta sinn í líkamsrækt eða að byrja aftur eftir nokkra fjarveru. Margir eru óöruggir og kunna ekki á lóðin og fara því beint í brennslu og enda jafnvel á því að ofgera sér. Lykilatriðið er að fólk ætli sér ekki of mikið, taki ekki janúarsprengjuna á allt, breyti mataræði, hætti að drekka og reykja og fari að hreyfa sig reglulega. Langskynsamlegast er að taka eitt í einu, byrja á hreyfingu og ná tökum á henni þá fylgir hitt oftast á eftir.“ Líkamsrækt er ekki óháð tískusveiflum frekar en annað, einu sinni var eróbikk vinsælast og svo fóru allir í spinning og í jóga. En hvað skyldi vera aðalmálið þetta árið? Linda Hilmarsdóttir, eigandi líkamsræktarstöðvarinnar Hress í Hafnarfirði, segir að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í líkamsræktarstöðvum landsins, fjölbreytnin sé gífurleg. „Við erum mikið að vinna með HIIT-lotuþjálfun, það er feikivinsælt, tímarnir eru stuttir og henta því fólki sem hefur lítinn tíma en vill vera í góðri þjálfun. Æfingarnar eru í lotum þú gefur þitt besta í 30 sekúndur og hvílir svo í 15 sekúndur, allir eru með púlsmæla og get því fylgst vel með eigin ástandi og gefið í eða dregið úr eftir þörfum.“Heitt er heitast Æfingar í upphituðum sal hafa notið mikilla vinsælda og virðist ekkert lát vera á. „Við finnum greinilega fyrir mikilli aðsókn í heitu tímana okkar, en þeir virðast henta þeim sem þurfa að ná sér eftir veikindi eða eru með stoðkerfisvandamál,“ segir Linda. Í sama streng tekur Hrafnhildur og segir að heitir tímar og HIIT-þjálfun sé það sem er í tísku í dag. „Það er svo margt í boði í dag og mér finnst æðislegt að sjá hvað fólk hefur úr miklu að velja. En ég myndi segja að allt sem heitir Hot sé voða inn í dag, Hot jóga, Hot fit, Hot flex. Síðan er fólk mikið farið að fara í HIIT með lóðum og keyrir prógrammið fjórum sinnum í gegn. Það er frábær blanda af þoli og styrk. Crossfitið heldur vinsældum sínum sem og æfingar með ketilbjöllum.“Allir ættu að geta fundið hreyfingu við hæfi.Síbreytileg matartíska Þeir sem ætla að breyta um lífsstíl og taka mataræðið í gegn verða oftar en ekki ráðvilltir og vita ekki í hvorn fótinn á að stíga þegar kemur að því að velja rétta matarkúrinn. „Það eru alltaf einhverjar tískusveiflur í matarkúrum, hvort sem það er vegan, LKL, 5:2 eða detox þá er það allt gott og blessað svo lengi sem fólk heldur það út og gerir það að lífsstíl. Allt er samt gott í hófi. Ég legg mikla áherslu á hreinan mat og gott skipulag, það sem verður fólki oft að falli er að það er á hraðferð gleymir að borða og „grípur í eitthvað í leiðinni“ sem er oftst ekki mjög næringarríkt. Besta leiðin til að viðhalda árangri er að taka eitt skref í einu, taka fyrst út hveiti, næst sykur og svo koll af kolli,“ segir Hrafnhildur. Þrátt fyrir tískubylgjur í hreyfingu og mataræði gildir að gera það sem hverjum og einum finnst skemmtilegast og réttast fyrir sig – úr nægu er að velja.
Mest lesið Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Lífið Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Lífið Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Lífið Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Lífið Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Lífið Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Lífið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Lífið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Lífið Úr Idolinu yfir í útvarpið Lífið Fleiri fréttir Minnast Bryndísar Klöru á tónleikum: „Pínulítil hugmynd sem stækkaði og stækkaði“ Húðrútína ekki síður fyrir karlmenn Umdeilt uppáhald arkitekts við Austurvöll Tekinn inn í frægðarhöll rafíþróttanna Lakkrískóngurinn Bülow selur sveitasetrið Skilnaður Step Up hjóna genginn í gegn Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Tökumenn LXS yfirheyrðir í 90 mínútur og áttu ekki að fá inngöngu inn í landið Úr Idolinu yfir í útvarpið „Siðlausi siðfræðingurinn“ hreyfir ekki við Stefáni Einari Fagnaðarfundir á fyrstu frumsýningu vetrarins Hvað gerði Diddy? Mansal, ofbeldi og samsæriskenningar um Justin Bieber Steldu stílnum af heimili Laufeyjar Sama hvað fólki finnst Danska poppdívan Medina selur glæsivilluna Prince-dansarinn Cat er látinn Heillandi haustkvöld í Höfuðstöðinni Svona undirbýr Bogi sig fyrir útsendingu Ekkert mál að hlaupa alveg staurblindur „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Breyttu Kolaportinu í risa skemmtistað „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Norðlenskur útsýnisdraumur „Hvar eru allir herramennirnir?“ Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Hittast á hlutlausum stað Risavaxinn mörgæsarungi nýjasta stjarna Melbourne Magnaðar myndir af lengstu á landsins Seldu Kolbeini Sigþórs og keyptu í miðbænum Tóku hraðanum misalvarlega en hlupu fyrir langveik börn Sjá meira