Sport

Nýi White Hart Lane völlurinn fær NFL leik í október

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Seahawks mæta til Lundúna í október
Seahawks mæta til Lundúna í október vísir/getty
Nýi leikvangurinn sem Tottenham er að byggja verður vettvangur NFL leiks í haust, en greint var frá fréttunum í dag.

Seattle Seahawks og Oakland Raiders munu leika á vellinum þann 14. október, en Tottenham áætlar að geta notað völlinn sem heimavöll sinn í ensku úrvalsdeildinni frá og með næsta tímabili, sem hefst í ágúst.

Leikurinn verður leikinn á gervigrasi sem liggur undir fótboltavellinum, en mannvirkið er hið tæknilegasta og útbúið til þess að geta auðveldlega hýst bæði fótboltaleiki og NFL leiki.

Tottenham skrifaði undir samning við NFL deildina til tíu ára sem segir að tveir leikir verði spilaðir á nýja White Hart Lane vellinum á hverju tímabili.

Í október munu einnig fara fram tveir NFL leikir á Wembley, Philadelphia Eagles á móti Jacksonville Jaguars og Tessessee Titans gegn LA Chargers.

Árið 2007 var fyrst spilaður NFL leikur í London og síðan þá hefur 21 leikur farið þar fram.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×