Innlent

Lögreglan tjáir sig um MeToo: „Allir brotaþolar eru skjólstæðingar lögreglu“

Þórdís Valsdóttir skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld þar sem áréttað er hvert hlutverk lögreglu sé ef grunur er á því að brot hafi verið framið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld þar sem áréttað er hvert hlutverk lögreglu sé ef grunur er á því að brot hafi verið framið. Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í kvöld þar sem hún ítrekar að allir brotaþolar séu skjólstæðingar lögreglu. Lögreglan segir að það sé hlutverk hennar að rannsaka mál ef grunur er á því að brot hafi verið framið.

„Síðastliðnar vikur og mánuði hafa margir stigið fram og lýst því að brotið hafi verið á þeim í orði og í verki. Konur eru þar í yfirgnæfandi meirihluta. Frásagnirnar eru margar og sumar svo átakanlegar að fólki er verulega brugðið,“ segir í yfirlýsingunni sem Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar, sendi fjölmiðlum fyrr í kvöld.

Þá segir einnig að sumar frásagnanna nái langt aftur í tímann en aðrar eru nýlegar og bent er á að enginn þjóðfélagshópur er undanskilinn. „Í lýsingum kemur einnig fram að enginn þjóðfélagshópur er undanskilinn og að ætluð brot hafi fengið að þrífast á ólíklegustu stöðum.“ 

Í yfirlýsingunni segir lögreglan að í umræðunni hafi því verið velt upp hvert hlutverk lögreglu sé í þessu sambandi. „Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu telur rétt að taka það skýrt fram að allir brotaþolar eru skjólstæðingar lögreglu. Á lögreglu hvílir rannsóknarskylda fái hún grun eða vitneskju um að brot hafi átt sér stað. Og það er hlutverk lögreglu og ákærenda að svara því hvort ætluð brot kunni að vera fyrnd eða hvernig sönnunarstöðu sé háttað,” segir í yfirlýsingunni.

 


Tengdar fréttir

Nauðgað á gólfinu sem hún skúraði

Konur af erlendum uppruna sendu í dag frá sér 34 nafnlausar frásagnir, þar á meðal af fordómum, kúgun, heimilisofbeldi, áreitni og nauðgunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×