Lífið

20 ár síðan Bill Clinton laug að heimsbyggðinni

Benedikt Bóas skrifar
Monica Lewinsky og Bill Clinton í Hvíta húsinu.
Monica Lewinsky og Bill Clinton í Hvíta húsinu.
Clinton var þarna að lýsa yfir að hann hefði ekki stundað framhjáhald með Monicu Lewinsky – sem kom síðar í ljós að var bull og lygi.

Lygasan lifir enn góðu lífi á tækniöld og hafa yfir milljón manns séð myndbandið þar sem hann segir þessa setningu á Youtube. Síðar viðurkenndi forsetinn að hann hefði átt í óviðeigandi sambandi við hina 24 ára gömlu Lewinsky, sem var lærlingur í Hvíta húsinu.

Fram að blaðamannafundinum hafði Clinton varist fimlega öllum ásökunum. Margt var búið að skrifa og segja um hversu náin kynni þeirra voru en þegar Clinton kom á blaðamannafundinn lét hann engan bilbug á sér finna. Þetta var fimmta fyrirlýsing hans um málið á sex dögum.

„Ég vil segja eitt við bandarísku þjóðina. Ég vil að þið hlustið á mig. Ég segi það enn og aftur, ég átti aldrei í kynferðislegu sambandi við þessa konu, Lewinsky.“ Veifaði hann fingri í áttina að sjónvarpsvélunum til að leggja áherslu á mál sitt og stóð eiginkona hans, Hillary, þétt við hlið hans.

„Þessar ásakanir eru rangar og ég þarf að snúa mér að því að vinna fyrir bandarísku þjóðina," bætti forsetinn við en hann flutti stefnuræðu sína síðar um kvöldið.

Málið var svo rannsakað en almenningur í Bandaríkjunum var ekkert spenntur fyrir fréttum fjölmiðla um framhjáhaldið og vildi lítið lesa um það og ekki horfa á fréttir um það. Vissulega hafði málið áhrif, sérstaklega á forsetakosningarnar árið 2000. 

Þar tapaði Al Gore fyrir George Bush og vilja margir meina að framboð Gore hafi litast af skandalnum. Clinton talaði ekki máli Gore í Arkansas eða New Hampshire og tapaði Gore fyrir Bush svo eftir var tekið.

Sem fyrr segir átti Clinton eftir að viðurkenna að hafa haldið framhjá konu sinni með Lewinsky. Að neðan má sjá umfjöllun CNN frá 21. janúar 1998 um málið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.