Bíó og sjónvarp

Casey Affleck afhendir ekki Óskarsverðlaun í ár

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Casey Affleck með Óskarsverðlaunin sem hann fékk í fyrra.
Casey Affleck með Óskarsverðlaunin sem hann fékk í fyrra. vísir/getty

Bandaríski leikarinn Casey Affleck mun ekki afhenda Óskarsverðlaunin í ár til þeirrar leikkonu sem valin verður sú besta í aðalhlutverki en samkvæmt hefðinni ætti Affleck að veita þau verðlaun í ár þar sem hann var í fyrra valinn besti leikarinn í aðalhlutverki.



Samkvæmt frétt Variety mun Affleck ekki mæta á Óskarsverðlaunin en það var langt því frá óumdeilt þegar hann hlaut verðlaunin í fyrra. Ástæðan var sú að samstarfskonur Affleck sem unnu með honum að myndinni I‘m Still Here árið 2010 sökuðu hann þá um kynferðislega áreitni.



Sjá einnig: Umdeildur Óskarsverðlaunahafi sakaður um kynferðislega áreitni gegn samstarfskonum



Í kjölfar þess að Affleck fékk Óskarinn í febrúar rifjuðu fjölmiðlar vestanhafs ásakanirnar upp. Rúmu hálfu ári síðar, eða í október 2017, var kvikmyndaframleiðandinn og einn valdamesti maðurinn þá í Hollywood, Harvey Weinstein, afhjúpaður sem maður sem nýtti sér vald til að áreita konur kynferðislega og beita þær kynferðislegu ofbeldi.  



Skömmu síðar hófst svo MeToo-byltingin þar sem konur víða um heim hafa stigið fram og lýst kynferðislegri áreitni og ofbeldi af hálfu karlmanna.



Það vakti athygli á Óskarsverðlaununum í fyrra að leikkonan Brie Larson, sem afhenti Affleck styttuna eftirsóttu, klappaði ekki fyrir honum líkt og aðrir í salnum. Þá var hún ísköld þegar hún afhenti honum Golden Globe-verðlaunin í fyrra en ástæðan voru einmitt fyrrnefndar ásakanir á hendur Affleck.



Affleck neitaði ásökunum staðfastlega á sínum tíma og hótaði að kæra þær á móti fyrir rangar sakargiftir en í október 2010 náðu hann og konurnar sáttum utan dómstóla. Í því felst meðal annars að hvorki hann né þær megi tjá sig um málið.



Eftir Óskarsverðlaunin hafi Affleck hins vegar þetta að segja um ásakanirnar í viðtali við Boston Globe: 



„Ég trúi því að öll ill meðferð á fólki, sama hvers vegna hún er, sé óásættanleg og viðbjóðsleg, og að allir eigi skilið að það sé komið fram við þá af virðingu á vinnustaðnum og rauninni hvar sem er. Það er ekki mikið sem ég get gert í þessu annað en að lifa mínu lífi eins og ég veit að ég lifi því og að segja frá mínum gildum og reyna að lifa eftir þeim.“


Tengdar fréttir

Verst geymda leyndarmál Hollywood í áratugi

Harvey Weinstein hefur verið einn valdamesti maðurinn í Hollywood í áratugi. Hann hefur nú verið rekinn frá framleiðslufyrirtæki sínu og er á leið í meðferð við kynlífsfíkn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.