UFC vill að þeir sjái um aðalskemmtiatriðið þetta kvöldið og er Gunnar búinn að samþykkja en Till og hans menn eru eitthvað að draga fæturnar í málinu eins og Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars, komst að orði við Vísi í morgun.
Liverpool-maðurinn Darren Till er einn sá allra heitasti í UFC þessa dagana eftir að hann tók Donald „Cowboy“ Cerrone og pakkaði honum saman á síðasta ári en hann er í sjöunda sæti styrkleikalista veltivigtarinnar og hefur farið mikinn undanfarin misseri.
Mikil áhætta
Sigur á stærsta bardagakvöldi Evrópu myndi heldur betur hjálpa Gunnari aftur á fætur eftir tapið umdeilda gegn argentínska augnpotaranum Santiago Ponzinibbio í Glasgow á síðasta ári.„Þessi bardagi kemur eilítið á óvart þar sem ég hélt að Darren Till myndi fá hærra skrifaðan andstæðing eftir hans síðasta sigur og sérstaklega þar sem Gunni tapaði síðast. UFC hefur væntanlega reynt að fá Stephen Thompson til að mæta Till en það ekki gengið. Þetta kemur skemmtilega á óvart en samt er ég drullu stressaður fyrir þennan bardaga ef af verður,“ segir Pétur Marinó Jónsson, ritstjóri MMA Frétta og sérfræðingur og aðallýsari UFC á Stöð 2 Sport.
„Þetta er mikil áhætta en gæti líka skotið Gunna hátt upp. Þessa dagana eru allir að tala um Darren Till, Colby Covington og Kamaru Usman sem einhverja mögulega framtíðar meistara en það er enginn að tala um Gunna. Með sigri á Till gæti Gunni stolið sviðsljósinu af Till og komist aftur í þessa umræðu sem líklegur áskorandi. Annað tap, og þá sérstaklega eftir rothögg, væri hálfgert áfall og er ég viss um að ansi margir myndu afskrifa Gunnar. Það er því til mikils að vinna fyrir Gunna en líka mikil áhætta.“
Óbilandi trú
Pétur segir að margir séu að afskrifa Gunnar Nelson og telji hann ekki eiga mikla mögulega gegn Till. Það er þá helst vegna þess að Till er svo miklu stærri en að eigin sögn vill sá enski berjast í léttþungavigt (93 kg) en ekki veltivigt (77 kg).„Það má samt ekki gleyma því að Till er í raun bara með einn geggjaðan sigur gegn Donald Cerrone í október. Fram að því hafði hann unnið þrjá bardaga, einn eftir rothögg, og gert eitt jafntefli og það gegn minni spámönnum. Till gerði frábærlega gegn Cerrone en hann nýtti sér líka veikleika Cerrone mjög vel og kom með góða leikáætlun. Maðurinn er ekkert ósigrandi þó hann hafi litið vel út síðast,“ segir Pétur.
„Þetta verður rosalega hættulegur bardagi og ég á alveg eftir að farast úr stressi ef það verður af þessu. En þetta er áhætta sem Gunni er tilbúinn að taka og það sýnir kannski þá trú sem hann hefur á sjálfan sig og sýnir visst hugrekki. Hann hefði pottþétt getað fengið auðveldari bardaga en Gunni vill mæta öllum þeim bestu,“ segir Pétur Marinó Jónsson.