Gylfi eini Íslendingurinn sem spilar með einu af ríkustu félögum heims Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. janúar 2018 07:30 Það er nóg til hjá Everton en það keypti Gylfa Þór á 45 milljónir punda. vísir/getty
Manchester United er aftur orðið tekjuhæsta félag heims en það hirti efsta sætið af Real Madrid í Deloitte-peningadeildinni sem er árleg úttekt endurskoðunarfyrirtækisins á ríkustu félagsliðum heims og tekur mið af tekjum þeirra á síðustu leiktíð. Tíu félög frá Englandi eru á meðal 20 ríkustu liðanna en heildartekjur liðanna 20 á síðustu leiktíð námu tæpum sjö milljörðum punda sem fer langt með að sprengja íslenskar reiknivélar. Tekjur Manchester United voru 581 milljónir punda á síðustu leiktíð en Real Madrid var í öðru sæti aðeins hálfri annarri milljón á eftir United. Aldrei áður hefur verið svona lítill munur á tveimur efstu sætunum. Samkvæmt frétt Sky Sports um peningadeildina hefði United ekki náð efsta sætinu án sigurs í Evrópudeildinni en 39 milljónirnar sem félagið fékk fyrir sigur í henni tryggði því á endanum efsta sætið. Manchester City er næsta enska félag á listanum á eftir Manchester United í fimmta sæti en Real Madrid, Barcelona og Bayern München eru þar á milli í sætum tvö til fjögur. Gylfi Þór Sigurðsson er eini Íslendingurinn sem leikur með einu af 20 ríkustu félögum heims en Everton er í 20. sæti listans.Deloitte-peningadeildin 1. Manchester United 2. Real Madrid 3. Barcelona 4. Bayern Munich 5. Manchester City 6. Arsenal 7. PSG 8. Chelsea 9. Liverpool 10. Juventus 11. Tottenham 12. Borussia Dortmund 13. Atletico Madrid 14. Leicester 15. Inter Milan 16. Schalke 17. West Ham 18. Southampton 19. Napoli 20. Everton
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira