Hér má sjá leikarann Tarjei Sandvik Moe, einnig þekktur sem Isak í Skam talar hér við Mette Marit, Hákon Noregsprins og Katrínu prinsessu.Glamour/Getty
Vilhjálmur Bretaprins og Katrín hertogaynja af Cambrigde eru heldur betur í fjölbreyttri dagskrá í opinberri heimsókn sinni til Noregs. Í dag komu þau í heimsókn í Hartvig Nissen gagnfræðiskólann í Osló betur þekktur sem sögusviðið fyrir sjónvarpsþættina vinsælu Skam.
Að sjálfsögðu tóku nokkrir í hópi aðalleikara Skam á móti þeim og fengu þau smá kynningu á hvaða áhrif sjónvarpsþættirnir hafa haft á norsk ungmenni.
Leikkonan Iman Meskini úr Skam deildi myndum af heimsókninni á Instagram og var greinilega í skýjunum með fundinn við konungsfólkið en þau fengu einnig að vera með í veislu í höllinni í gærkvöldi.