„Það var æðislegt að vera í salnum og finna fyrir viðbrögðum fólks við myndbandinu. En þetta var ákveðið áhættuatriði fyrir mig því ég hafði sjálfur ekki séð neitt frá því ég lék í því. Ég vildi bara láta koma mér á óvart eins og öllum öðrum í salnum. Guðný og stelpurnar hjá Andvara eru greinilega geggjaðar í því sem þær gera og við eigum vonandi eftir að vinna saman aftur,“ segir Aron Hannes um nýja myndbandið.
„Þetta myndband hefur allt, það er mikill húmor, frábær dansatriði hjá Brynjari og Luies, hraðar og flotta klippingar og hundinn Burton sem stóð sig frábærlega. Ég hef aldrei áður haldið á hárlausum kínverskum faxhundi. En hann stóð sig frábærlega.“
Myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan: