Lífið

Sólrún Diego og Frans eignuðust dreng

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sólrún er alfræðiorðabók um allt sem viðkemur rekstri heimilisins, ofboðslega vinsæl á netinu og bók hennar hefur rokið út.
Sólrún er alfræðiorðabók um allt sem viðkemur rekstri heimilisins, ofboðslega vinsæl á netinu og bók hennar hefur rokið út. Stöð 2
Snapchat-stjarnan Sólrún Diego og Frans Veigar Garðarsson, eignuðust son í dag. Frá þessu greinir Sólrún á Snapchat reikningi sínum.

Fyrir á parið dótturina Maísól. Sólrún heldur úti vinsælum Snapchat reikningi og er ein af svokölluðum áhrifavöldum hér á landi. Það er fjölmennur hópur sem fylgist náið með lífi og störfum Sólrúnar á samskiptaforritinu en um 25 þúsund manns fylgja henni.

Hún gefur fylgjendum sínum ýmis nytsamleg húsráð og þar kemur ediksblandan hennar, vinsæla, við sögu.

Fyrir jól gaf Sólrún út bókina Heima sem fjallar um þrif og heimilishald en um tíma var hún á toppi bóksölulistans. Þá heldur Sólrún jafnframt úti vinsælli bloggsíðu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.