Hagar drógu samrunatilkynningu til baka á síðustu stundu Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 8. mars 2018 16:41 Hagar undirrituðu kaupsamning um kaup á öllu hlutafé Olís í apríl á síðasta ári. Vísir/Anton Brink
Hagar hafa afturkallað samrunatilkynningu til Samkeppniseftirlitsins vegna fyrirhugaðrar sameiningu Haga, Olís og fasteignafélagsins DGV ehf. Ekki er búið að hætta við samrunann þar sem Hagar ætla að senda inn nýja samrunatilkynningu. Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið haft til rannsóknar fyrirhuguð kaup Haga á Olís og DGV á grundvelli samrunatilkynningar sem send var eftirlitinu í lok september 2017. Var rannsóknin á lokastigi og ákvörðunar að vænta í dag. Högum barst andmælaskjal vegna málsins frá Samkeppniseftirlitinu, sem liður í málsmeðferð þess á samrunanum, og gekk til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið til úrlausnar á þeim þáttum sem taldir eru raska samkeppni og koma fram í frummati Samkeppniseftirlitsins. Þær sáttaviðræður skiluðu hins vegar ekki endanlegri niðurstöðu innan tímafrests eftirlitsins.Í tilkynningu frá Högum til Kauphallar segir að stjórn Haga hafi ákveðið að afturkalla samrunatilkynningu vegna málsins og mun á næstunni senda Samkeppniseftirlitinu nýja samrunatilkynningu, á breyttum grundvelli. Þar segir einnig að hin nýja samrunatilkynning muni bjóða skilyrði sem muni vera möguleg lausn á þeirri frumniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins að samruninn raski samkeppni. Kaupsamningurinn er háður fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins og því verður ekki frá kaupum Högum á Olís og DGV fyrr en afstaða Samkeppniseftirlitsins liggur fyrir.
Tengdar fréttir Búa sig undir Costco með kaupum á Olís Hagar skrifuðu í gær undir kaup á Olís fyrir 15 milljarða króna. Forstjóri Haga segir félagið betur í stakk búið til að takast á við samkeppni. 27. apríl 2017 07:00 Hagar kaupa Olís Félagið starfrækir það um 115 starfsstöðvar á um 50 stöðum á landinu, aðallega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstrarlands. Þá á Olís 40% í Olíudreifingu ehf. 26. apríl 2017 18:37 Samkeppniseftirlitið samþykkir ekki samruna Olís og Haga án skilyrða Samkeppniseftirlitið hefur sent Högum andmælaskjal vegna kaupa félagsins á Olíuverzlun Íslands hf., Olís, og fasteignafélagsins DGV ehf. 29. janúar 2018 08:53 Mest lesið Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því Atvinnulíf Verðskrá Lufthansa hækkar vegna nýs umhverfisgjalds Neytendur Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Viðskipti innlent Tekur við fjármálunum hjá Securitas Viðskipti innlent Fleiri fréttir 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Sjá meira
Búa sig undir Costco með kaupum á Olís Hagar skrifuðu í gær undir kaup á Olís fyrir 15 milljarða króna. Forstjóri Haga segir félagið betur í stakk búið til að takast á við samkeppni. 27. apríl 2017 07:00
Hagar kaupa Olís Félagið starfrækir það um 115 starfsstöðvar á um 50 stöðum á landinu, aðallega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstrarlands. Þá á Olís 40% í Olíudreifingu ehf. 26. apríl 2017 18:37
Samkeppniseftirlitið samþykkir ekki samruna Olís og Haga án skilyrða Samkeppniseftirlitið hefur sent Högum andmælaskjal vegna kaupa félagsins á Olíuverzlun Íslands hf., Olís, og fasteignafélagsins DGV ehf. 29. janúar 2018 08:53