Bíó og sjónvarp

Paul Newman gaf Susan Sarandon hluta af launum sínum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Leikararnir Susan Sarandon og Paul Newman.
Leikararnir Susan Sarandon og Paul Newman. Vísir/Samsett
Bandaríska leikkonan Susan Sarandon segir að leikarinn Paul Newman, sem lést árið 2008, hafi eitt sinn gefið henni hluta af launum sem hann fékk fyrir leik sinn í kvikmyndinni Twilight (1998). Sarandon og Newman léku saman í myndinni.

Sarandon tjáði sig um atvikið í viðtali við breska ríkisútvarpið í dag. Þegar talið barst að máli leikkonunnar Emmu Stone, sem steig nýverið fram og greindi frá því að karlkyns meðleikarar hennar hefðu krafist þess að hún fengi jafnmikið greitt fyrir vinnu sína og þeir, sagðist Sarandon eitt sinn hafa verið í sambærilegri stöðu.

„Þetta kom einu sinni fyrir mig og Paul Newman þegar við lékum saman í kvikmynd fyrir löngu síðan,“ sagði Sarandon og átti þar að öllum líkindum við kvikmyndina Twilight sem kom út árið 1998. Með aðalhlutverk í myndinni fóru téð Sarandon og Newman, auk leikarans Gene Hackman, en hlutverk þeirra voru öll jafnstór.

Á einhverjum tímapunkti í ferlinu uppgötvaði Sarandon að meðleikarar hennar fengu meira greitt fyrir leik í myndinni en hún. Svo virðist sem kvikmyndaverið hafi samið sérstaklega við Newman og Hackman en ekki Sarandon.

„Hann steig fram og sagði: „Jæja, ég gef þér hluta af mínum“,“ sagði Sarandon um Newman og bar honum vel söguna.

Þá ræddi Sarandon, sem hlotið hefur Óskarsverðlaun á ferli sínum sem leikkona, einnig #MeToo-byltinguna, Harvey Weinstein og stöðu kvenna í Hollywood í viðtalinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.