„Það eina sem þetta B-listafólk vill er verkfall, verkfall og aftur verkfall“ Jakob Bjarnar skrifar 5. mars 2018 10:31 Fyrir liggur undirrituð yfirlýsing um áróður á kjörstað. Sólveig Anna og hennar lið mæta með undirskriftir á skrifstofu Eflingar til staðfestingar framboði sínu. Svo virðist sem þau séu ekki mjög velkomin á þær slóðir. visir/eyþór
Vísir hefur undir höndum undirritaða yfirlýsingu tveggja einstaklinga sem lýsa því hvernig starfsmaður á skrifstofu Eflingar reyndi að telja konu sem er af erlendu bergi brotin, sem mætt var á skrifstofuna til að kjósa utan kjörfundar, inná það að kjósa A-listann. Það væri eina vitið. Þetta B-listafólk vissi hins vegar ekkert hvað það væri að gera. Yfirlýsingin fylgir í viðtengdu skjali neðst í fréttinni.Búið að boða kæru Gísli Tryggvason, lögmaður B-lista, sagðist í stuttu samtali við Vísi, vera búinn að boða kæru. Sólveig Anna Jónsdóttir, sem fer fyrir B-lista, segist ekki vilja tjá sig um málið fyrr en einhver viðbrögð frá sitjandi stjórn Eflingar liggja fyrir. Vísi tókst ekki að ná í Sigurð Bessason formann nú í morgun. Í dag og á morgun eru hinir eiginlegu kjördagar, stjórnarkosningar Eflingar. Tveir listar eru í framboði, eða eins og segir á síðu stéttarfélagsins: A-listi stjórnar og trúnaðarráðs og B-listi Sólveigar Önnu Jónsdóttur. En undanfarna daga hafa farið fram kosningar utan kjörfundar.Mjög hæft fólk á A-listanum Í áðurnefndri yfirlýsingu, sem er á ensku, segjast tveir einstaklingar hafa þann 1. mars verið að bíða þess þriðja sem var í kjörklefa þegar erlend kona kom inn á skrifstofuna. Konan kvartaði undan því að ekki væru aðgengilegar upplýsingar um kosningarnar á tungumáli sem hún skildi. Og hún hefði enga hugmynd um hvað ætti að kjósa? Konan sem annaðist kosningar hélt því hins vegar fram að allar upplýsingar væru aðgengilegar á ensku, á vefsíðunni og hóf síðan að ræða nánar við konuna.Sólveig Anna og Ingvar Vigur Halldórsson takast á í leiðtogakjöri Eflingar, kosningar sem virðast ætla að draga dilk á eftir sér. Gísli Tryggvason boðar kæru vegna áróðurs á kjörstað. Ekki náðist í Sigurð Bessason formann Eflingar vegna málsins.Hún staðhæfði að A-listann skipaði mjög hæft fólk, sem þegar væri starfandi hjá félaginu, hefði gert það og vissi því hvað það væri að gera og hvernig félagið virkaði.Eina sem þetta fólk vill er verkfall og aftur verkfall En, því væri ekki að fagna með B-listann. Þar færi fólk sem aldrei hefði svo mikið sem mætt á fundi félagsins, ekkert þeirra hefði starfað hjá félaginu og vissi því fátt eitt um hvernig það virkaði. Það eina sem það fólk vildi væri bara „verkfall, verkfall og aftur verkfall“. En, Efling ætti að forðast verkföll því þetta væri hreyfing fólks sem hefði mjög lág laun og verkfall myndi því reynast því mjög kostnaðarsamt. Þessi rök virtust vega mjög þungt að mati starfsmanns Eflingar, þess sem annaðist kosningarnar. Erlenda konan yfirgaf hins vegar staðinn án þess að kjósa. Við svo búið gaf annar einstaklinganna sem undirrita yfirlýsinguna sig á tal við konuna og spurði hvort þetta gæti talist eðlilegt? Hún spurði á móti hvort í spurningunni fælust ásakanir? „Ég sagði já. Þetta væri óeðlilegt. Þeim sem sæi um kosningu bæri að vera hlutlaus.“Starfsmaður Eflingar vill ekki sjá neinar breytingar Konan svaraði því svo til að hún hefði ekki sagt konunni hvað hún ætti að kjósa, hvorki A né B-lista. Hún væri aðeins að vitna í það sem fram hafi komið í fjölmiðlum. Sá sem hefur orðið í yfirlýsingunni sagði á móti að augljóst væri með hverjum konan stæði og hún sagði það ekkert leyndarmál. Hún vildi engar breytingar, hún vildi halda áfram því góða starfi sem væri verið að vinna af hálfu Eflingar. Við svo búið yfirgáfu þeir tveir einstaklingar sem skrifa undir yfirlýsinguna staðinn.Áróður á kjörstað stranglega bannaður Vísir vildi bera þessa frásögn undir Sigurð Bessason formann en hann á skrifstofunni fengust þær upplýsingar að hann svaraði ekki síma, hann væri ekki á skrifstofu sinni og ekki væri leyfilegt að gefa upp farsíma hans. Gísli Tryggvason lögmaður vill benda á ákvæði úr almennri kosningalöggjöf, eftirfarandi: „Það er óleyfilegur kosningaáróður og kosningaspjöll: [...] b. að reyna að hafa áhrif á atkvæðagreiðslu, hvort heldur er með ræðuhöldum, prentuðum eða skriflegum ávörpum eða auglýsingum, með því að bera eða hafa uppi merki stjórnmálasamtaka, merki lista eða önnur slík auðkenni á sjálfum kjörstaðnum, þ.e. í kjörfundarstofu, kjörklefa eða annars staðar í eða á þeim húsakynnum þar sem kosning fer fram, svo og í næsta nágrenni [...]“ Að gefnu tilefni, segir lögmaðurinn. „Samanber skjalfestar upplýsingar sem komið hefur verið til formanns kjörstjórnar.“
Kjaramál Tengdar fréttir Efling þverneitar að afhenda B-framboði upplýsingar um félagsmenn Sigurður Bessason segir um trúnaðarupplýsingar sé að ræða þrátt fyrir álit Persónuverndar. 26. febrúar 2018 15:21 Mest lesið Leitin að Slater blásin af Erlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Innlent Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum Innlent Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Erlent „Hann á að vera hér á Íslandi“ Innlent Hiti víða yfir tuttugu stigum á Austurlandi Veður Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Innlent Fleiri fréttir Óður hundur réðst á tvo í Grafarvogi Tónlistarveisla framundan í Skálholti Fórna sumarfríinu til að hjálpa fólki á hálendinu Öflugur skjálfti í Bárðarbungu Kosningar, uppbygging í Grafarvogi og hálendisvakt „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Samsæriskenningar, borgarstjóri um húsnæðismál og kosningar Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Riðu um miðbæinn til að fagna Landsmóti Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum 82 ára snillingur í Hafnarfirði í hannyrðum „Hann á að vera hér á Íslandi“ Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Alvarlegar aukaverkanir af brúnkunefspreyjum og brottvísun Yazans Tamimi Rændi fötum fyrir nánast hundrað þúsund Hugsi yfir lausagöngu fjár við vegi eftir að ferðamaður ók á lamb Séra Aldís Rut tekur við af verðandi biskup Parísarhjólið varla óvinsælt ef sextíu þúsund vilja taka snúning Rabarabarahátíð í gamla bænum á Blönduósi Býst ekki við nýju eldgosi Hyggst ekki flýta bílabanni og efasemdir um nýtt eldgos Stútar á rafhlaupahjólum handteknir og mega búast við sektum Hjólhýsi brann í Húsafelli Boða til samstöðufundar með Yazan Tíu ára stúlku vísað úr strætó Kristján Loftsson skilur ekkert hvað hvalveiðar koma alls kyns samtökum við Séra Sigfús Jón Árnason látinn Kolólöglegt og hættulegt brúnkulyf í tísku á samfélagsmiðlum Sjá meira
Efling þverneitar að afhenda B-framboði upplýsingar um félagsmenn Sigurður Bessason segir um trúnaðarupplýsingar sé að ræða þrátt fyrir álit Persónuverndar. 26. febrúar 2018 15:21