Viðskipti erlent

Konur taka við völdum í fyrirtæki Weinstein

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Athafnakonan Maria Contreras-Sweet fer fyrir fjárfestahópnum.
Athafnakonan Maria Contreras-Sweet fer fyrir fjárfestahópnum. Vísir/Getty

Konur munu fara með tögl og hagldir í fyrirtækinu sem stofnað var af kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein. Þær ætla sér meðal annars að greiða þolendum Weinstein skaðabætur út úr félaginu.



Greint var frá því fyrr í vikunni að framleiðslufyrirtækið The Weinstein Company væri á barmi gjaldþrots. Það kom svo í ljós í gær að fjárfestar hefðu stigið fram og lýst yfir áhuga á að kaupa allar eignir félagsins, þar með talinn réttinn að 277 kvikmyndum sem fyrirtækið hefur framleitt í gegnum árin.



Athafnakonan Maria Contreras-Sweet fer fyrir fjárfestahópnum sem er sagður reiðubúinn að greiða um 50 milljarða íslenskra króna fyrir eignasafn Weinstein-félagsins. Inn í þeirri upphæð eru 9 milljarðar sem verja á í skaðabætur til þolenda Harveys Weinstein. Tugir kvenna hafa stigið fram og ásakað kvikmyndaframleiðandann um kynferðislega áreitni og misnotkun.



Sjá einnig: Fyrirtæki Weinstein gjaldþrota

Contreras-Sweet segir að nýja fyrirtækinu sem reist verður á rústum Weinstein-félagsins verði stýrt af nýrri framkvæmdastjórn sem að mestu verður skipuð konum. Konur munu hafa meirihluta atkvæða í fyrirtækinu og þannig hafa úrslitaáhrif á allar stærri ákvarðanir fyrirtækisins. Ætlunin er sögð vera að byggja upp öflugt kvikmyndaframleiðslufyrirtæki og bjarga 150 störfum. 



Fráfarandi stjórn The Weinstein Company segist sátt með málalyktir og að hin erfiða staða sem komin var upp virðist ætla að leysast farsællega.



Contreras-Sweet, sem fór með málefni lítilla fyrirtækja í stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta, segir að sér hafi runnið blóðið til skyldunnar þegar hún heyrði af brotum Weinstein. Því hafi verið ákveðið að láta hluta kaupverðsins renna til þolenda kvikmyndaframleiðandans.


Tengdar fréttir

Fyrirtæki Weinstein gjaldþrota

Framleiðslufyrirtækið The Weinstein Company sem stofnað var af Harvey Weinstein, stefnir í gjaldþrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×