Lífið

Bryan Cranston segist staddur á Íslandi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Bryan Cranston er Íslendingum eflaust flestum kunnur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Breaking Bad.
Bryan Cranston er Íslendingum eflaust flestum kunnur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Breaking Bad.
Bandaríski leikarinn Bryan Cranston virðist vera staddur á Íslandi ef marka má myndband sem hann deildi á Instagram-reikningi sínum í kvöld. Þá sagði hann aðdáendum sínum frá skoplegu tannburstunar-óhappi en Nútíminn greindi fyrst frá komu leikarans.

„Ég er með litla ferðatannburstann minn, vegna þess að ég er á Íslandi, og svo dró ég fram tannkremið mitt og setti á tannburstann og byrjaði að bursta,“ segir Cranston í myndbandinu sem hann tekur upp á símann sinn inni á ótilgreindu baðherbergi.

Cranston lýsir því svo hvernig bragðið af tannkreminu hafi komið sér óþægilega á óvart.

„Þetta er líklega versta tannkrem sem ég hef smakkað,“ segist Cranston hafa hugsað með sér. Að lokum sýnir Cranston fylgjendum sínum túpuna, sem reyndist hafa verið fótasmyrsl. Skýringin á slæma bragðinu sé því fundin.

Bryan Cranston er Íslendingum eflaust flestum kunnur fyrir leik sinn í þáttaröðinni Breaking Bad. Þar fór hann með hlutverk kennarans og eiturlyfjabarónsins Walters White. Þá lék hann einnig föður söguhetju þáttanna Malcolm in the Middle sem sýndir voru á SkjáEinum.

Ekki er ljóst hvers vegna Cranston hefur ákveðið að sækja Ísland heim né hversu lengi hann mun dvelja hér á landi.

At least I won't get athlete's mouth!

A post shared by Bryan Cranston (@bryancranston) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.