Fótbolti

Tap í fyrsta leik hjá Heimi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Heimir Guðjósson var í áraraðir við stjórnvöllinn í Kaplakrika en er farinn á vit ævintýranna í Færeyjum.
Heimir Guðjósson var í áraraðir við stjórnvöllinn í Kaplakrika en er farinn á vit ævintýranna í Færeyjum. Vísir/Ernir
Lærisveinar Heimis Guðjónssonar í HB Þórshöfn fengu skell í fyrstu umferð færeysku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld.

Þeir tóku á móti Klaksvik og lentu undir strax á 22. mínútu leiksins þegar Boris Dosljak skoraði fyrsta mark leiksins.

Staðan var 1-0 í hálfleik en gestirnir settu tvö mörk á tveggja mínútna kafla um miðjan seinni hálfleikinn. Það voru Semir Hadzibulic og Pall Klettskard.

Erfið byrjun hjá Heimi en hann og félagar hans í HB fá Viking í heimsókn í annari umferð eftir viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×