Fótbolti

Fyrsti byrjunarliðsleikur Arnórs í Svíþjóð

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Arnór Ingvi Traustason boðinn velkominn til Malmö.
Arnór Ingvi Traustason boðinn velkominn til Malmö. Mynd/Twitter/@Malmo_FF
Íslenski landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Malmö í dag en hann gekk til lðs við sænska félagið í desember.

Malmö tók á móti Gautaborg í sænsku bikarkeppninni í dag og fór með sigur af hólmi. Sigurmarkið skoraði Lasse Nielsen eftir hornspyrnu Arnórs.

Arnór var svo tekinn af leikvelli á 54. mínútu.

Með sigrinum tryggði Malmö sér sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×