Samdi heimsfrægt lag en skrifar ósjaldan gúmmítékka fyrir mat Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. apríl 2018 10:00 Jóhann Helgason í Hljóðrita í Hafnarfirði í gær þar sem Söknuður var tekinn upp á plötu árið 1977. Fréttablaðið/Eyþór
tónlist „Ég get ekki verið að naga mig í handarbökin í ruggustólnum,“ segir Jóhann Helgason sem kynnti á blaðamannafundi í gær framhald málareksturs til að fá viðurkenndan höfundarrétt á laginu You Raise Me Up. Söngvarinn Josh Groban gerði You Raise Me Up heimsfrægt og er lagið eignað Norðmanninum Rolf Løvland sem samdi norska Eurovision-sigurlagið La det svinge. Jóhann lýsti hvernig hann fékk fyrst pata af útgáfu Grobans á árinu 2004 og hóf málshöfðun í Bretlandi. Botninn hafi dottið út henni. Aftur hafi verið farið af stað en málið stöðvast vegna skorts á fjármögnun á árinu 2011. „Við vonumst til að þetta gefi fjármögnuninni byr undir vængi,“ sagði Jóhann um nýja útgáfu af Söknuði sem hann kynnti í gær. Þar syngur Edgar Smári Atlason Söknuð með enskum texta undir heitinu Into the Light. Útgáfunni er ætlað að undirstrika afgerandi líkindi You Raise Me Up og Saknaðar. Í fræðilegri greiningu fyrir STEF á árinu 2004 eru lögin sögð sláandi lík. Jon Kjell Seljeseth, sem útsetti nýju útgáfuna, sagði á fundinum að Rolf Løvland hefði örugglega fengið gefna kassettu með Söknuði á í tengslum við Eurovision söngvakeppnina. Auk þess hafi hann haft ýmis tækifæri til að komast í snertingu við lagið, meðal annars í heimsóknum til Íslands.Klippa: Blaðamannafundur Jóhanns Helgasonar - Bein útsending Sigtryggur Baldursson, formaður ÚTÓN, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, sagði málið snúast um peninga. „Þetta er spurning hvor hefur efni á stærri lögfræðingi,“ sagði Sigtryggur. Hilmar Foss, sem aðstoðað hefur Jóhann, tók í svipaðan streng. „Þetta er múrveggur sem er þykkur, hár og stór.“ Þótt hindranirnar virðist óyfirstíganlegar kveðst Jóhann verða að halda áfram. Lögmannsstofa hafi þegar sent kröfubréf til Universal sem vísi öllu á bug. Jóhann bendir á að málið hefði farið á annan veg ef Söknuður hefði verið skráð hjá Warner Chapell þar sem hann var á samningi er lagið var samið árið 1977. „Þeir hefðu náttúrlega afgreitt þetta mál strax í byrjun,“ segir hann við Fréttablaðið. Þess í stað stendur Jóhann nú einn í baráttu við útgáfurisann Universal Music sem mun hafa sjö þúsund starfsmenn í vinnu og velta jafnvirði 700 milljarða króna á ári. „Þeir vilja ekki semja og Universal treystir á að ég fái enga fjármögnun,“ segir Jóhann sem kveður enda tvísýnt um það. Tryggja þurfi á annað hundrað milljónir króna fyrirfram. „En við teljum að þetta muni opna augu margra. Þetta er áhættufjárfesting en það getur verið mikill hagnaður.“ Sjálfur kveðst Jóhann aldrei hafa rætt við Løvland um málið. Norska blaðið Verdens Gang hafi í umfjöllum um Løvland sagt hann lifa hátt á þessu eina lagi. „Það eru ótal aðilar búnir að raka inn fé á þessu lagi. En ég er í fjölbýlishúsi úti á Nesi og er búinn að skrifa ótal gúmmítékka fyrir mat,“ segir tónskáldið hreint út. Jóhann bætir við að 99 prósent af íslenskri tónlist séu lítt varin fyrir stuldi erlendra stórfyrirtækja. „En hvort sem stolið er sjónvarpi, bíl eða lagi þá er það ekkert í lagi. Rétt skal vera rétt.“
Jóhann Helgason gegn Universal Mest lesið „Ég ætla ekki að þegja lengur“ Lífið Anna Lilja nældi sér í fjárfesti Lífið Íslenskar stjörnur flykkjast í sólina Lífið Ramsay snæddi á Nebraska og lenti í árekstri á Edition Lífið Gagnrýnir varaforsetaefni Trump fyrir ummæli um barnlausar konur Lífið Borðar ekkert nema kjöt, egg og smjör Lífið „Smávægileg martröð“ að vinna fyrir Olsen systurnar Lífið Græðgi meðleikonu hafi skemmt endurkomuna Lífið Chalamet syngur sem Bob Dylan í nýrri stiklu Lífið Stikla fyrir nýja íslenska grínþætti: „Þetta er ógeðslega fyndið“ Lífið Fleiri fréttir Four Tops söngvarinn Abdul „Duke“ Fakir látinn Óvænt að heyra að fólkið á LungA hafi alist upp við Hjaltalín Iceguys snúa aftur í sturluðu tónlistarmyndbandi Myndaveisla: Almennilegt rigningardjamm á Kótelettunni Iceguys dansandi í handjárnum Retro Stefson koma aftur saman Portú-galin stemning hjá Villa Netó Herbert og Patrik leika við hvern sinn fingur í nýju myndbandi Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Lætur langþráðan draum rætast og gefur út óð til grínsins Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Sterk sumarást í sveitinni kveikti áhugann á þýskunni Kenndi Kelly Clarkson að bera fram Laufey og Björk Ungstirni gefur út sitt fyrsta lag DJ goðsögn stýrði trylltum dansi „Fólkið er kjarni Þjóðhátíðar og ég vildi sýna það“ Er ósigrandi á sviði og sækir orkuna niður í jörð Nýjasta súperstjarna heimsins „Stefni út í heim og er með stóra drauma“ Scooter til landsins með risatónleika í Laugardalshöll Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann Öxar við ána nú til í salsaútgáfu Lofar svakalegri veislu „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Frikki Dór er til í allt í þriðja skiptið Frikki fellir heimsmetið á miðnætti með Steinda jr. beran að ofan Lykilmaður íslensku rappsenunnar stígur inn í sviðsljósið „Country tónlist er ekki lengur bara sakbitin sæla“ Björgvin Halldórs kveður jólagesti í desember Sjá meira