Lífið

Sonja hætt í Áttunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sonja Rut Valdin, söngkona og fyrrverandi meðlimur í Áttunni
Sonja Rut Valdin, söngkona og fyrrverandi meðlimur í Áttunni VÍSIR/ERNIR
„Sonja stígur til hliðar,“ segir í tilkynningu frá samfélagsmiðlahópnum Áttunni í stöðufærslu en þar segir að Snapchat-stjarna Sonja Valdin sé hætt í Áttunni.

„Fyrir ári síðan kom Sonja Valdin til starfa hjá Áttunni. Á þessu ári hefur hún gert vægast sagt magnaða hluti með okkur, nú stígur hún til hliðar og við óskum henni alls hins besta í nýjum og spennandi verkefnum.“

Sonja vakti fyrst athygli þegar hún kom fram í laginu NEINEI með Áttunni á síðasta ári. Lagið sló rækilega í gegn og var stjarna fædd.

Sonja tók til að mynd þátt í Söngvakeppninni á dögunum og það með Áttunni. Hér að neðan má sjá kveðjumyndband Sonju Valdin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.