Manchester City eru Englandsmeistarar eftir tap Manchester United Einar Sigurvinsson skrifar 15. apríl 2018 16:45 Jose Mourinho. vísir/getty Manchester City eru enskir meistarar eftir sigur West Bromwich Albion á Manchester United í dag. Leikurinn fór fram á Old Trafford og lauk með 1-0 sigri gestanna. Tap United þýðir að ekkert lið á möguleika á að ná City að stigum þó Manchester liðin eigi bæði eftir að spila fimm leiki í deildinni. Leikur Manchester United og West Bromwich Albion var heldur tíðindalítill framan af en það var ekki fyrr en um miðbik síðari hálfleiksins sem Jay Rodriguez skoraði eina marki leiksins. Boltinn barst til Rodriguez eftir að Nemanja Matic tókst ekki að hreinsa boltann eftir hornspyrnu WBA. Fyrir leikinn í dag hafði WBA aðeins þrjár leiki í ensku úrvalsdeildinni en liðið hafði ekki unnið deildarleik síðan í lok janúar. WBA situr þó enn sem fastast í neðsta sæti deildarinnar með 24 stig, níu stigum frá öruggu sæti. Manchester United er í 2. sæti deildarinnar með 71 stig. Enski boltinn