Umræddum algrími (e. algorithm) er lýst í einkaleyfisumsókninni. Í henni er gert ráð fyrir að hægt verði að hlusta á samræður notenda og safna þannig upplýsingum um þá. Þegar fréttir bárust af umsókninni veltu sérfræðingar því fyrir sér hvort koma ætti hinni nýju tækni fyrir í Echo-hátölurum Amazon, sem eru raddstýrðir og því útbúnir hljóðnemum.
Sjá einnig: Óhugnanlegur hlátur Alexu hræðir notendur
Í umsókninni segir enn fremur að algrímið myndi nýta sér „stikkorð“ á borð við „mér líkar“ og „ég elska“ til að sigta út hluti sem eru notendum hugleiknir. Þessir hlutir yrðu svo notaðir í sérsniðnar auglýsingar handa hverjum notanda fyrir sig.
Amazon hefur hins vegar gefið það út að fyrirtækið nýti sér ekki tækni til að hlera samtöl viðskiptavina sinna. Þá segir einnig í yfirlýsingu að Amazon „taki persónuvernd alvarlega“ og að umsóknir um einkaleyfi „endurspegli ekki endilega vöruþróun innan fyrirtæksins á þessum tímapunkti.“

Í svari Zuckerberg kom fram að um væri að ræða þráláta samsæriskenningu. Hann, líkt og talsmenn Amazon, þvertók fyrir að hlusta á samtöl notenda.