Tónlist

Hvað er í gangi hjá Kanye West?

Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir skrifar
Aðdáendur og vinir rapparans Kanye West hafa lýst yfir áhyggjum af hegðun hans á Twitter seinustu vikuna.
Aðdáendur og vinir rapparans Kanye West hafa lýst yfir áhyggjum af hegðun hans á Twitter seinustu vikuna. Vísir/Getty
Kanye West er umdeildur en jafnframt vinsæll rappari. Hann er einn besti tónlistarmaður sinnar kynslóðar, stöðug enduruppgötvun með hverri plötu sem hann gefur út hefur mótað tónlistariðnaðinn síðustu ár og endurskilgreint hvað flokkast undir rapptónlist.

Hann hefur einnig verið óhræddur við að viðra skoðanir sínar og á sínum tíma gagnrýndi hann George Bush þáverandi Bandaríkjaforseta harðlega. Hann sagði að forsetanum þætti ekki vænt um svart fólk vegna þess hvernig Bush brást við eftir fellibylinn Katrínu sem lagði New Orleans í rúst.

Það kom því mörgum aðdáendum og vinum rapparans á óvart þegar hann lýsti yfir ást sinni á Donald Trump, Bandaríkjaforseta, á Twitter á dögunum. Margir aðdáendur hafa lýst yfir áhyggjum af því að rapparinn sé andlega veikur eða sé að snúast til róttækra hægri afla (e. alt right).

Öfga hægrið

Síðan rapparinn opnaði twitter-aðganginn sinn aftur fyrr í þessum mánuði hefur hann tilkynnt að hann ætli að gefa út tvær plötur, sé að skrifa heimspekirit, sé búinn að reka umboðsmann sinn og nú síðast lýst yfir stuðningi við Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og öfgakenndar skoðanir hans.

Þetta byrjaði allt á laugardag þegar Kanye tísti að hann elski hvernig Candace Owen hugsar. Mörgum brá við þetta tíst en Owen er umdeild fyrir öfgakenndar, hægrisinnaðar skoðanir.

Á mánudag endurtísti Kanye síðan myndböndum frá Scott Adams, öðrum umdeildum hægrisinnuðum manni sem er vinsæll hjá samsæriskenningasmiðum og er ötull stuðningsmaður Trumps Bandaríkjaforseta. Í myndböndunum lofsöng Adams rapparann fyrir að hrósa Candace Owen og hugsunum hennar. Hann talaði einnig um að Kanye hafi opnað fangelsi hugans með því að tala um Owen.

Kanye virðist vera að íhuga forsetaframboð því að á þriðjudag tísti hann „2024“ sem marga grunar að vísi í forsetakosningar í Bandaríkjunum en þar næstu kosningar fara fram árið 2024.

Áhyggjur af andlegri heilsu rapparans

Fjölmiðlar, sem og aðdáendur, héldu síðan að Kanye væri að missa vitið á miðvikudag og lýstu yfir áhyggjum af andlegri heilsu rapparans.

Kanye byrjaði á því að tísta myndum af heimili sínu og eiginkonu sinnar, Kim Kardashan, og hæddist að þeirri hugmynd að hann væri staddur í „the sunken place“ úr hryllingsmyndinni Get Out. 

Röð tísta frá Kanye fylgdi í kjölfarið þar sem hann sagðist vera vanur því að vera umdeildur fyrir sjálfstæða hugsun sína. Múgurinn gæti ekki fengið hann til að elska Trump ekki því þeir búi báðir yfir „drekaorku“. Rapparinn bætti einnig við að hann elskaði alla en sé ekki samþykkur öllu sem allir gera. Hann hélt því til haga að hann styddi hvorki Demókrataflokkinn né Repúblikanaflokkinn og að hann sé ekki pólitískur. Hann endaði síðan á því að kalla eftir meiri ást og sannleika í heiminum.

Seinna um daginn (athugið að það er enn þá miðvikudagur) deildi hann mynd af sér með forstjóra Universal Music og tónlistarstjóra YouTube, þar sem hann var með Make America Great Again-derhúfu, sem Donald Trump gerði fræga í forsetakosningabaráttu sinni.

Donald Trump, Bandaríkjaforseti, þakkaði Kanye fyrir stuðninginn á Twitter. Á meðan það átti sér stað var Kim Kardashian á haus að verja eiginmann sinn fyrir gagnrýni frá fjölmiðlum sem ýja að því að hann sé andlega veikur fyrir að viðra skoðanir sínar og stuðning við Trump.

Framhaldið óljóst

Tíststormur rapparans hristi hressilega upp í aðdáendum og vinum hans og margir voru furðu lostnir. Vinir hafa reynt að tala við hann og útskýra hversu alvarleg hegðun þetta sé hjá rapparanum en hann lætur deigan ekki síga og heldur staðfastur í skoðun sína á Trump og hugsjónum hans. 

Tónlistarmaðurinn John Legend er góður vinur Kanye og reyndi að tala vin sinn til í SMS-skilaboðum. Það endaði ekki betur en svo að rapparinn birti samskipti þeirra á Twitter síðu sinni. Legend tók því greinilega ekki illa og nýtti tækifærið til að vekja athygli nýju lagi sem hann var að gefa út. 

Enginn veit hvert framhaldið verður hjá rapparanum eða hvort hann haldi áfram á sömu braut. Aðdáendur hafa bent á þá staðreynd að hann sé að fara að gefa út tvær nýjar plötur og þessi hegðun gæti því tengst umfjöllun og auglýsingaherferð fyrir þær. Það er enn sem komið er óstaðfest. Það verður forvitnilegt að fylgjast með því hvernig aðdáendur rapparans bregðast við þessari nýtilkomnu hegðun hans. 

Eitt er víst: Kanye West er hverni nærri hættur að tísta. Þeim sem vilja kynna sér málið betur er bent á Twitter-síðu kappans sem má skoða hér


Tengdar fréttir

Yeezús er risinn aftur

Íslandsvinurinn Kanye West vaknaði til lífsins á Twitter í síðustu viku og fór að senda frá sér tíst í gríð og erg. Þar á meðal kynnti hann nýja bók og tvær nýjar plötur, þar á meðal sólóplötuna sem hann hefur verið að vinna að í Wyoming-fylki upp á síðkastið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.