Íþróttadeild spáir Val Íslandsmeistaratitlinum og þar með að þeir verji titilinn sem að þeir unnu í fyrra. Valsliðið vann deildina með yfirburðum í fyrra og eftir að taka því rólega í Reykjavíkurbikarnum í byrjun árs hefur liðið verið langbest á undirbúningstímabilinu og unnið bæði Lengjubikarinn og Meistarakeppni KSÍ. Það virðist ekkert lið vera nálægt Val eins og staðan er núna.
Valsmenn litu eins út fyrir tíu árum síðan, síðast að þegar að liðið varð Íslandsmeistari. Þá drottnaði liðið yfir undirbúningstímabilinu en fékk svo 5-3 skell gegn Keflavík í fyrstu umferð og endaði í fimmta sæti. Valur hefur reyndar ekki varið Íslandsmeistaratitilinn í rúm 50 ár en það gæti orðið breyting á í sumar.
Þjálfari Vals er Ólafur Jóhannesson sem er búinn að vinna níu titla á þremur tímabilum plús undirbúningstímabilinu sem nú er að klárast. Ólafur er að stimpla sig inn sem einn besti efstu deildar þjálfari sögunnar en hver veit hvar hann mun standa ef hann heldur áfram að raða inn titlinum. Ólafur og aðstoðarmaður hans Sigurbjörn Hreiðarsson virðast sniðnir fyrir þetta lið og umhverfi.
Svona munum við eftir Val
Það var gleði í kringum Valsliðið enda ekki annað hægt. Yfirmennirnir tveir, Ólafur og Sigurbjörn, brostu hringinn nánast allt mótið og það smitaði út frá sér á frábæru tímabili að Hlíðarenda.
Liðið og leikmenn

Þrír sem Valur treystir á:
Anton Ari Einarsson: Markvörðurinn úr Mosfellsbænum var sá besti í deildinni á síðustu leiktíð en það eru fáir leikmenn sem hafa tekið jafnmiklum framförum og hann síðan að Anton hirti stöðuna af Ingvari Kale í annarri umferðinni fyrir tveimur árum síðan. Valsmenn fá ekki á sig mörg færi en það verður undir honum komið að gera eins og í fyrra og verja þau skot sem koma á markið.
Eiður Aron Sigurbjörnsson: Það var alveg hægt að útnefna bæði Eið Aron og félaga hans í miðverðinum, Orra Sigurð Ómarsson, besta leikmann Íslandsmótsins á síðasta ári. Þeir voru báðir það góðir. Nú er Orri Sigurður farinn og því hvílir enn meiri ábyrgð á herðum Eiðs, sérstaklega þegar að Valsmenn eru að spila sinn svakalega sóknarbolta.
Haukur Páll Sigurðsson: Í liði sem er stútfullt af stjörnum og mikið af mönnum sem vilja fá boltann og sýna listir sínar er alltaf mikilvægt að hafa alvöru fyrirliða sem lætur félaga sína heyra það þegar það á við. Fyrir utan að vera mikill leiðtogi átti Haukur sína bestu leiktíð í fyrra og var algjörlega magnaður inn á miðjunni.
Markaðurinn

Kristinn Freyr sprakk út hjá Val og fær nú tækifæri til að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Frábær fótboltamaður sem getur fengið að njóta sín í þessu frábæra liði. Svo var fenginn X-factor í Ólafi Karli Finsen sem kemst væntanlega ekki í liðið til að byrja með. Það er þokkalegur liðsstyrkur til að koma inn af bekknum.
Birkir Már fer auðvitað snemma til móts við landsliðið og Arnar Sveinn Geirsson er meiddur en breiddin er bara svo mikil að það skiptir eiginlega ekki máli.
Markaðseinkunn: A+
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Þeir eru með frábært lið og það er gaman að horfa á þá spila fótbolta. Þeir spila skemmtilegan og góðan fótbolta, voru flottir á síðustu leiktíð og hafa verið stöðugir í vetur. Þeir virðast koma tilbúnir í mótið og leikmennirnir virðast líka hafa gaman að þessu.“
„Ég held að það sé alltaf gaman að vera í kringum Ólaf og Sigurbjörn. Leikmennirnir virðast hafa gaman að þessu. Þetta er frábært lið, vel mannað og það verður gaman að fylgjast með því. En, við viljum líka sjá þá fara langt í Evrópu,“ segir Reynir Leósson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru … afar fá. Arnar Sveinn Geirsson er meiddur og Birkir Már Sævarsson fer til móts við landsliðið. Þeir geta leyst það með að nota Dion í vængbakverði en þá er spurning um miðvarðastöðuna. Valsmenn ætluðu að fá sér þriðja miðvörðinn en hann er ekki enn þá kominn. Svo er bara spurning hvort og hvernig leikmennirnir ráða við þessa pressu að allir spái þeim titlinum.
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Siggi: Ég hef engu við þetta að bæta. Sjáumst á föstudaginn, Binni.