Guardiola: Nú horfi ég bara á metin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 22. apríl 2018 19:30 Guardiola getur leyft sér að fagna vísir/afp
Manchester City er aðeins sex stigum frá því að bæta stigametið í ensku úrvalsdeildinn eftir stórsigur á Swansea í kvöld. Pep Guardiola segir að nú horfi hann bara á að bæta met. Chelsea náði 95 stigum í deildinni tímabilið 2004-05. City er með 90 stig eftir 34 leiki af 38 og miðað við frammistöðu þeirra í dag ætti ekki að þvælast fyrir þeim að taka tvo sigra og slá þetta met. „Við erum búnir að vinna deildina, núna snýst þetta um metin,“ sagði Guardiola eftir leikinn. „Þú ert aldrei í pásu í fótboltanum, það þarf að halda áfram að bæta sig.“ „Ef við værum að hugsa „allt í góðu, við erum meistarar nú þegar,“ þá værum við búnir að vera. Ef við höldum áfram að bæta okkur þá erum við í fínum málum.“ City getur einnig náð í þrjú önnur met, flesta sigra á einu tímabili, flest mörk og stærsta bil á milli 1. og 2. sætis. Chelsea náði 30 sigrum veturinn 2016-17. City er með 29. Því getur Guardiola ekki náð í stigametið nema að minnsta kosti jafna það met. Chelsea á einnig metið yfir flest mörk skoruð, það settu þeir vorið 2010 þegar liðið skoraði 103 mörk á einu tímabili. Sóknarlið City er komið með 98 mörk. Nágrannarnir í Manchester United eiga metið yfir stærsta bilið í deildinni, þeir unnu deildina með 18 stigum árið 2000. United er einmitt liðið sem situr í öðru sæti í deildinni, 16 stigum á eftir City. Þeir bláklæddu þurfa að treysta á að rauðklæddu grannar sínir missi af einhverjum stigum til þess að ná þessu meti, en það munar aðeins þremur stigum svo aldrei að vita nema Pep nái að bæta því í safnið.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira