Bíó og sjónvarp

Síðasta stiklan fyrir nýjustu Mamma Mia komin út

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Dominic Cooper og Amanda Seyfried snúa aftur.
Dominic Cooper og Amanda Seyfried snúa aftur.
Þriðja og síðasta stiklan fyrir framhaldsmynd Mamma mia!, Mamma Mia! Here We Go Again er komin út. Myndin verður frumsýnd 20.júlí hér á landi. Tíu ár eru liðin síðan að fyrri myndin var frumsýnd og ljóst er að aðdáendur mega eiga von á góðu.

Í stiklunni má sjá góðkunningja úr fyrri myndina birtast á ný, meðal annars persónur þeirra Meryl Streep, Pierce Brosnan, Colin Firth, Stellan Skarsgård, Amanda Seyfried, Julie Walters og fleiri. Þá fer Cher einnig með hlutverk í myndinni.

Í nýju myndinni verður meðal annars fylgst með forsögu fyrri myndarinnar, þegar Donna átti í ástarsambandi við þá Sam Carmichael, Harry Bright og Bill Anderson og eignaðist síðar Sophie.

Síðustu stikluna má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.