Bíó og sjónvarp

„Kvenkyns ofurhetja sem þurfti ekki skikkju“

Birgir Olgeirsson skrifar
Baltasar með Tami Oldham og aðalleikurum myndarinnar Adrift.
Baltasar með Tami Oldham og aðalleikurum myndarinnar Adrift. vísir/ap
„Ég hafði þarna tækifæri til að gera kvikmynd um kvenkyns ofurhetju sem þurfti ekki skikkju,“ segir leikstjórinn Baltasar Kormákur um mynd sína Adrift í samtali við bandaríska fjölmiðilinn Variety.

Myndin er byggð á sannsögulegum atburðum en hún segir frá Tami Oldham sem þarf að bjarga sér og unnusta sínum úr sjávarháska eftir að hafa lent í fjórða stigs fellibyl á Kyrrahafinu.

Baltasar ræddi við Variety þegar myndin var frumsýnd í Los Angeles í síðustu viku en þar sagðist hann ekki hafa lesið handrit myndarinnar í fyrstu með það í huga að aðalsöguhetjan væri kona. Líkamlegur og andlegur styrkur persónunnar hafi heillað hann í fyrstu.

Að slík persóna væri kona var eitthvað sem varð að aðalatriði síðar meir.

„Þegar ég fór fyrst að hugsa um það, þá eru afar fáar, ef einhverjar myndir, sem sýna baráttu kvenna gegn náttúruöflum. Þetta eru venjulega karlar og úlfar. Eða karlar með skegg sem veltast um í snjónum,“ sagði Baltasar.

Hann sagði þessa mynd hafa verið afar erfiða í tökum. Myndin var tekin upp að hluta úti á hafi undan ströndum Fiji-eyja.

Hann sagði leikarana hafa verið glaða í fyrstu. „En það voru bara fyrstu tveir klukkutímarnir,“ segir Baltasar og bætir við að flestir hafi orðið sjóveikir og kastað upp.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.