Bíó og sjónvarp

Sjáðu Heru skína í stiklu nýjustu stórmyndar Peter Jackson

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Hera er í aðalhlutverki í myndinni
Hera er í aðalhlutverki í myndinni Vísir
Hera Hilmarsdóttir er í aðalhlutverki í nýjustu stórmynd Peter Jackson sem væntanleg er síðar á árinu. Út er komin ný stikla fyrir myndina þar sem Hera er í aðalhlutverki.

Myndin ber nafnið Mortal Engines og kemur í kvikmyndahús í desember. Er hún nýjasta afurð Jackson sem best er þekktur fyrir Lord of the Rings myndir sínar.

Sjá einnig:Var óviss um að hún væri nógu góð fyrir Ben Kingsley

Mortal Engines segir frá fjarlægri framtíð þar sem jarðarbúar hafast við á því litla sem eftir er af jörðinni vegna mikilla hamfara. Mannfólkið hefur þar náð að aðlagast þessum hrikalegu aðstæðum.

Leikur Hilma hlutverk Hester Shaw í myndinni en með önnur hlutverk fara Hugo Weaving og Stephen Lang. Leikstjóri er Christian Rivers, náinn samstarfsmaður Jackson, sem framleiðir myndina.

Stikluna má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.