Fótbolti

Heimir um Rúrik: Hann kom mörgum á óvart

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson. Vísir/Andri Marinó
Rúrik Gíslason var maður leiksins þegar Ísland tapaði fyrir Noregi á Laugardalsvelli í kvöld, viku áður en íslenska liðið heldur til Rússlands.

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, lofaði frammistöðu hans á blaðamannafundi eftir leikinn. „Rúrik er einn af þeim sem hefur verið að spila 90 mínútur regluelga með sínu félagi og er það í fyrsta sinn í langan tíma sem það gerist hjá honum,“ sagði Heimir.

„Það er því greinilegt að hann er í toppstandi. Það er frábært þegar menn nýta tækifæri og senda skilaboð. Við viljum að allir geri það og það var gaman að sjá hvað það var mikill kraftur í honum. Ég veit að það kom mörgum á óvart.“

Ari Freyr Skúlason kom svo inn á í stöðu vinstri kantmanns, sem Rúrik spilaði í kvöld, og leysti hana vel af hólmi. „Ari var mjög öflugur eftir að hann kom inn og það sam má segja um Gylfa. Það voru margir ljósir punktar en ég er engu að síður jafn fúll yfir því að tapa leiknum.“

Hann var hvað óánægðastur með að leikmenn Íslands töpuðu mörgum návígjum í kvöld. „Við erum óvanir því. En við vissum að Norðmenn spila svipaðan leikstíl og við og þetta var því eins og að spila við spegil í kvöld. Þeir eru virkilega sterkir í því sem við viljum gera vel og þess vegna var alltaf vitað að þessi leikur yrði stál í stál.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×