Tónlist

The Chemical Brothers með tónleika í Laugardalshöll

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
The Chemical Brothers sjást hér á tónleikum.
The Chemical Brothers sjást hér á tónleikum. vísir/getty
Breska hljómsveitin The Chemical Brothers hefur boðað komu sína til Íslands og mun koma fram á einum tónleikum í Laugardalshöll þann 20. október næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá tónleikahaldaranum, Herra Örlygi.

 

Miðasalan fer fram á Tix.is og hefst þann 19. júní klukkan 10.

The Chemical Brothers er flestum tónlistarunnendum vel kunn enda hefur hún starfað frá árinu 1989 og á frá þeim tíma meðal annars gef út sex breiðskífur sem allar hafa ratað á toppinn á breska vinsældarlistanum.

Hljómsveitin er brautryðjandi á sviði raftónlistar en hefur þá sérstöðu innan þeirrar tónlistarstefnu að ná jafnt til aðdáenda hefðbundinnar rokktónlistar sem svokallaðrar danstónlistar, að því er kemur fram í tilkynningu.

„Tónleikar sveitarinnar eru mikið sjónarspil og er óhætt að segja að mögnuð tónleikaupplifun sé ein helsta ástæðan fyrir gríðarlegum vinsældum sveitarinnar.

Tónleikagestir í Laugardalshöll munu fá allan pakkann því The Chemical Brothers koma hingað með öll sín tæki og tól til að byggja upp sem magnaðasta upplifun fyrir íslenska aðdáendur,“ segir jafnframt í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.