Fótbolti

Hannes: Tómleikatilfinning eftir leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hannes í leiknum í kvöld.
Hannes í leiknum í kvöld. Vilhelm
Hannes Þór Halldórsson, markvörður Íslands, er stoltur af íslenska liðinu og hlakkar til framhaldsins. Hann segir líka að vonbrigðin eftir kvöldin séu mikil.

„Það var tómleikatilfinning sem maður fann fyrir. Ég var sannfærður um að þetta myndi falla okkar megin í dag. Við gáfum allt sem við áttum og ég var mjög sorgmæddur eftir lokaflautið og maður áttaði sig á því að við værum úr leik. Það var mjög erfitt,“ sagði Hannes við fjölmiðla eftir leikinn í kvöld.

Hann segir að sigurmark Króata undir lok leiksins hafi verið erfiður biti að kyngja.

„Þá vissi maður að þetta væri búið. Maður fékk því nokkrar mínútur til að venjast tilhugsuninni. Þetta er stærsta sviðið og við vorum millimetra frá því að komast áfram og þessi mörk munu sitja eftir sem þau mest svekkjandi sem maður fær á sig,“ sagði Hannes sem sagðist stoltur af því að hafa spilað á HM í knattspyrnu.

„Ég sagði eftir EM fyrir tveimur árum að hefðum getað hætt og verið stoltir af okkar ferli eftir þá keppni. Við getum verið enn stoltari nú. Það breytir því ekki að við ætluðum okkur áfram og það eru allir súrir núna vegna þess.“

Hannes segist vera spenntur fyrir framhaldinu, bæði Þjóðadeildinni og EM eftir tvö ár. Hann vilji halda Heimi Hallgrímssyni sem landsliðsþjálfara.

„Þetta hefur verið samfelld sigurganga síðustu ár og við viljum auðvitað halda henni. Við stefnum ótrauðir á næsta stórmót. Það er bjart framundan og það er svo æðislegt að taka þátt í þessu að það er stutt í að maður geti ekki beðið eftir næsta verkefni,“ sagði Hannes sem hefur verið á mála hjá Randers í Danmörku. Hann reiknar með að vera áfram þar.

„Ekki nema að eitthvað komi upp. Þá skoða ég það. Það hafa verið eitthvað um spennandi fyrirspurnir en ég mun ekki ræða það eitthvað frekar á þessu stigi málsins.“


Tengdar fréttir

Einkunnir Íslands: Emil bestur í kvöld

Venju samkvæmt gefur Vísir leikmönnum íslenska landsliðsins einkunn fyrir frammistöðu sína á HM. Það voru margir frábærir á vellinum í kvöld.

Gylfi: Við viljum halda Heimi

Gylfi Þór Sigurðsson segir vonbrigðin óneitanlega mikil eftir að Ísland féll úr leik á HM í knattspyrnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×