Talskona Melaniu sagði að það hafi verið hrein tilviljun að hún valdi þennan jakka við þetta tilefni, þetta hafi bara verið eitthvað sem hún fann í fataskápnum. Fréttaskýrendur segja það áhugavert í ljósi þess að flíkin kostar aðeins 39$ dollara og var sett á markað af tískukeðjunni Zöru í fyrra.
Donald Trump forseti og eiginmaður Melaniu sagði hins vegar á Twitter að það væri ekki rétt að jakkinn hafi verið handahófskennt val. Þvert á móti hafi Melania verið að senda sterk skilaboð til almennings um að trúa ekki því sem stendur í fjölmiðlum. Samhengið er ekki öllum augljóst, sérstaklega þar sem forsetahjónin eru nú tvísaga.
En þetta er ekki í fyrsta sinn sem fataval eða tíska veldur leiðtogum vandræðum.

Justin Trudeau
Forsætisráðherra Kanada, var að eigin sögn bara að reyna að sýna aðdáun sína á indverskri menningu í opinberri heimsókn sinni til Indlands fyrr á árinu.Mörgum þótti Trudeau hins vegar ganga full langt þegar hann klæddi sig og alla fjölskyldu sína upp í nokkrar mismunandi indverskar múnderingar áður en þau spókuðu sig í ferðinni. Á sumum myndum mátti sjá Trudeau og fjölskyldu í fullum skrúða á meðal Indverja sem sjálfir voru í látlaus jakkaföt. Voru hjónin sökuð um að vera í búningaleik í ferðinni.

Katrín hertogaynja
Á dögunum stóð Katrín, hertaogaynja af Cambridge, á tröppunum fyrir utan fæðingadeildina með þriðja barn hennar og Vilhjálms Bretaprins. Einhverjum fannst kjóll hennar kunnuglegur við fyrstu sýn.Þegar betur var að gáð reyndist Katrín klædd í svo gott sem nákvæmlega eins kjól o aðalpersónan í hryllingsmyndinni Rosemary‘s Baby. Söguþráður myndarinnar gengur út á að Rosemary, sem er leikin af Miu Farrow, er nauðgað af djöflinum og gengur með andkrist undir belti.
Ekki bestu hugrenningartengsl sem hægt er að hugsa sér við þetta tækifæri.

Barack Obama
Síðasti Bandaríkjaforseti sætti oft harðri gagnrýni fyrir hluti sem virtust smávægilegir fyrir utanaðkomandi.Sem dæmi má nefna ljósbrún jakkaföt sem Obama vogaði sér að klæðast opinberlega árið 2014. Repúblikanar og fréttastöðin Fox News gagnrýndu fatavalið harðlega og sögðu það til marks um að forsetinn tæki hlutverk sitt ekki alvarlega. Þá væri það vanvirðing við fallna hermenn og hvaðeina.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Fyrrverandi forsætisráðherra Íslands lendir á listanum fyrir einskæra óheppni.
Sigmundur ætlaði að vera í lakkskóm en vegna bólgunnar komst hann ekki lengur í vinstri skó sinn og því var brugðið á það ráð að senda aðstoðarmann út í búð til að kaupa rúmgóða og þægilega strigaskó.
Af einhverjum ástæðum ákvað hann samt að vera áfram í hægri skónum og mætti því á fundinn í ósamstæðum skóm sem vakti athygli.

Karl Gústaf Svíakonungur
Kóngurinn ákvað að setja upp víkingahjálm við opnun sögusafns um víkingaöldina. Þótti kóngsi heldur afkáralegur með höfuðfatið.
George W. Bush
Bush var svo óheppinn að koma oft kjánalega fyrir á ljósmyndum. Það var sérstaklega áberandi þegar hann sótti APEC fundi, þar sem hefðin er að þjóðarleiðtogar klæðist hefðbundnum klæðnaði gestgjafanna.Kínaföt Bush þóttu alveg nógu spes en steininn tók úr þegar hann leit út eins og mexíkóskur bandíti í þjóðarmussu Perú.

Mike Dukakis
Ein ljósmynd gerði út af við stjórnmálaferil Dukakis, sem atti kappi við George Bush eldri í forsetakosningunum 1988. Hann var eins og álfur út úr hól með hermannahjálm í skriðdreka.Björn Leví Gunnarsson

Þjóðin saup hveljur og Brynjar líkti Pírötum almennt við niðursetninga.
Dæmi eru um að þingmenn hafi verið sendir heim til að skipta um föt. Það kom fyrir Elínu Hirst, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem mætti í gallabuxum og var beðin um að fara ekki inn í þingsalinn í slíkum klæðnaði.