Lífið

Hemsworth sagður hafa aflýst brúðkaupinu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Miley Cyrus og Liam Hemsworth byrjuðu fyrst saman árið 2009.
Miley Cyrus og Liam Hemsworth byrjuðu fyrst saman árið 2009. Vísir/getty
Slúðurmiðlar í Ástralíu halda því nú fram að söngkonan Miley Cyrus og unnusti hennar, leikarinn Liam Hemsworth, séu hætt saman.

Samkvæmt áströlsku útgáfu OK!-tímaritsins má rekja sambandsslitin til ágreinings um barneignir. Hemsworth er sagður vilja eignast börn í náinni framtíð en Cyrus vill bíða með að bæta við fjölskylduna.

Cyrus og Hemsworth kynntust við tökur á kvikmyndinni The Last Song árið 2009 og trúlofuðu sig árið 2012. Þau hættu saman ári síðar en tóku saman á ný árið 2016.

Sjá einnig: Þekkt pör sem hættu saman og byrjuðu svo saman aftur

Þá eyddi Cyrus öllu út af Instagram-reikningi sínum í síðustu viku og í kjölfarið spruttu upp getgátur um að hún hyggði á útgáfu nýrrar tónlistar. Það hefur ekki fengist staðfest og þá ekki heldur hvers vegna hún eyddi myndunum út af Instagram.

 
#spicy

A post shared by Liam Hemsworth (@liamhemsworth) on Mar 6, 2018 at 7:13am PST


Tengdar fréttir

Miley Cyrus barði Jimmy Kimmel í punginn með sleggju

Söngkonan Miley Cyrus kom bandaríska spjallþáttastjórnandanum Jimmy Kimmel heldur betur á óvart á dögunum þegar hún vakti hann um miðja nótt með því að ráðast inn í svefnherbergið með sleggju.

„Ég á ekki að skammast mín“

Bandaríska söngkonan Miley Cyrus vakti nokkra athygli í vikunni fyrir að afturkalla afsökunarbeiðni sem hún gaf út árið árið 2008 vegna umdeildrar ljósmyndar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.