Ísland undanþegið verndartollum ESB Birgir Olgeirsson skrifar 18. júlí 2018 18:12 EES-samningurinn mun því tryggja íslenskum álframleiðendum áframhaldandi aðgang að markaðnum, segir utanríkisráðherra. Vísir/EPA
EFTA-ríkin innan EES, þar með talið Ísland, eru undanþegin tímabundnum verndartollum ESB á stálvörum sem tilkynnt var um í dag. Undanþágan, sem veitt er á grundvelli EES-samningsins, skapar fordæmi og mun einnig gilda um mögulega verndartolla á innflutning á áli til ESB sem nú eru til skoðunar. „Slíkir verndartollar myndu hafa mikil áhrif hér á landi þar sem ESB er okkar helsti útflutningsmarkaður fyrir ál. EES-samningurinn mun því tryggja íslenskum álframleiðendum áframhaldandi aðgang að markaðnum,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra. Í tilkynningu ESB kemur fram að 25% verndartollur verði lagður á tuttugu og þrjár stálvörur frá 19. júlí nk. Um er að ræða tímabundar aðgerðir sem eru m.a. svar við ákvörðun bandarískra stjórnvalda fyrr á árinu um að leggja tolla á ál og stál. Cecilia Malmström, viðskiptamálastjóri ESB, segir að verndartollar Bandaríkjanna á stál geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir stáliðnað ESB-ríkjanna og starfsmenn í stáliðnaði. Því sé enginn annar möguleiki í stöðunni en að leggja á verndartolla til að vernda innri markaði fyrir holskeflu af innflutningi á stáli. Hún leggur hins vegar áherslu á að aðgerðirnar tryggi að innri markaður ESB haldist opinn.
Mest lesið „Enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað“ Atvinnulíf Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Viðskipti innlent Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Viðskipti innlent Play í frjálsu falli Viðskipti innlent Sölunni slegið á frest Viðskipti innlent Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Viðskipti innlent Ekki trompast við fólk í vinnu eða á fundum Atvinnulíf „Síðan kemur í ljós að við erum í gjörólíkum störfum“ Atvinnulíf „Opinberi geirinn er að breytast og þar þarf mikinn fjölda verkefnastjóra“ Atvinnulíf Sex milljarðar í tekjur af nikótíni á næsta ári Neytendur Fleiri fréttir Sölunni slegið á frest Kormákur og Skjöldur flytja í Brynjuhúsið eftir algjöra yfirhalningu Play í frjálsu falli Semja við flugfélög í Færeyjum og á Grænlandi Hagkaup hættir sölu á Sodastream í kjölfar mótmæla Frigus fór fýluferð í Landsrétt Óljóst hvort breytingarnar bjargi rekstri Play Úlfur Þór til Firma lögmanna Eins og AirBnb og Uber en fyrir tónlistarkennslu Tvískiptur fasteignamarkaður og hækkandi vaxtabyrði „Play verður áfram íslenskt“ Sækja um leyfi á Möltu Herdís hefði frekar viljað halda vöxtum óbreyttum Hér og nú fjölgar starfsmönnum Samið um 800 íbúðir á Ásbrú Allsherjarinnköllun á krabbameinsvaldandi leikföngum Rotovia kaupir mexíkóskt fyrirtæki Íbúðaverð lækkar í fyrsta sinn frá janúar Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Hefur lokið störfum hjá Viðreisn en vill vera á lista Ráðist í athugun hjá Skel vegna meintrar markaðsskiptingar Icelandair í samstarf við þjóðarflugfélag Portúgals Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Segir aðför Eflingar með ólíkindum Áfram engar loðnuveiðar Rekstrarfélag Ítalíu á Frakkastíg gjaldþrota Segja fullyrðingar borgarfulltrúa um Carbfix ekki standast Spyr hvort Ísland vilji vera miðpunktur eða eftirbátur annarra Sjá meira