Dagný í Selfoss Anton Ingi Leifsson skrifar 16. júlí 2018 21:47 Dagný og Alfreð við undirskriftina. vísir/guðmundur karl
Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við Selfoss í Pepsi-deild kvenna. Samningurinn er út yfirstandandi leiktíð. Dagný eignaðist sitt fyrsta barn í síðasta mánuði en hún kemur til Selfoss frá Portland Thorns í bandarísku deildinni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dagný spilar með Selfyssingum en hún spilaði með liðinu 2013 til 2014. Þar skoraði hún rúmlega tuttugu mörk í 35 leikjum. „Mér líst mjög vel á að vera komin aftur til liðs við Selfoss í nýja heimabænum mínum. Það er mjög mikil tilhlökkun að komast aftur í takkaskóna,” sagði Dagný eftir undirskriftina. „Líkamlegt ástand mitt er hrikalega gott. Ég æfði vel á meðgöngunni og hef æft vel eftir fæðinguna og stefnan er sett á að mæta í takkaskónum í byrjun ágúst.” „Ég er mjög ánægður með að fá Dagnýju í Selfoss aftur. Við erum að fá gæðaleikmann og það vita allir hvað hún getur. Við ætlum að gera það sem við getum til þess að hún komist í sitt fyrra form,” sagði Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfyssinga, á Kaffi Krús í dag. „Hún mun vonandi hjálpa okkur mikið í baráttunni í deildinni á lokasprettinum. Við viljum byggja þetta upp á okkar stelpum og hún er hún er ein af þeim.”
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Leik lokið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti Fann ástina í örmum skilnaðarlögfræðingsins Fótbolti Hundrað milljónir og leiktíð lengri en ár í húfi hjá Víkingum Fótbolti Eyddi morgninum hjá tannlækni eftir slys Handbolti Komnar í vinnu við að gagnrýna Þóri Handbolti Ásgeir Örn ósáttur: „Held að skýrsla eftirlitsmannsins sé ekki rétt“ Handbolti Kærir föður sinn fyrir fjársvik Sport Fór holu í höggi yfir húsið sitt Golf Leggja niður störf og föst laun stórmeistara Sport Sjáðu fáránlegt sjálfsmark Celtic og endurkomur PSV og Benfica Fótbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira