Innlent

Eldur í bíl á Reykjanesi

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Frá Reykjanesbæ.
Frá Reykjanesbæ. Vísir/GVA
Eldur kom upp í fólksbíl við Mávabraut í Reykjanesbæ í kvöld.

Slökkviliðið var kallað út á sjöunda tímanum en þegar það kom á vettvang voru lögreglumenn þegar búnir að ráða niðurlögum eldsins með handslökkvitæki.

Í samtali við Vísi segir fulltrúi Brunavarna Suðurnesja að ekki hafi verið um mikinn eld að ræða.

Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá viftu í mælaborðinu og því leikur ekki grunur á íkveikju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×