Innlent

Björgunarsveitir sækja fjóra reiðhjólamenn í hrakningum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Fólkið er blautt og hrakið.
Fólkið er blautt og hrakið. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitin Húnar á Hvammstanga er nú á leið á Arnarvatnsheiði að sækja fjóra reiðhjólamenn sem þar eru í hrakningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Fólkið hafði samband við Neyðarlínu og óskaði eftir aðstoð nú í kvöld og er blautt og hrakið. Á svæðinu er leiðinlegt ferðaveður, rok og rigning. Ekkert annað er talið ama að fólkinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×