Vitni tóku skemmdarverkið upp á myndband Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. júlí 2018 06:33 Stjarnan er gjörónýt. Twitter
Dægurmálarisinn TMZ hefur birt myndband af manni á þrítugsaldri að stórskemma stjörnu Donalds Trump á Hollywood Boulevard í Los Angeles.Vísir greindi frá skemmdarverkunum í gærkvöldi. Maðurinn, hinn 24 ára gamli Austin Clay, réðst að stjörnunni með sleggju, haka og loftpressu aðfaranótt miðvikudags. Clay var jafnframt í fullum verkamannaskrúða og hafði komið fyrir umferðarkeilum og skiltum í kringum stjörnuna. Öryggisverðir á staðnum lögðu ekki í manninn þar sem þeir voru óvopnaðir og leist ekki á að yfirbuga mann sem fór hamförum með haka á miðri götunni.Sjá einnig: Í vondum málum eftir að mölva Hollywood stjörnu Donalds Trump í dagÞá var fjöldi vitna að aðförinni en ekkert þeirra skarst í leikinn. Clay fékk því óáreittur að athafna sig þangað til að hann hringdi sjálfur á lögregluna og gaf sig fram. TMZ greinir jafnframt frá því að James Otis, maðurinn sem reyndi að skemma stjörnu Trump árið 2016, hafi ákveðið að greiða 20 þúsund dala tryggingu fyrir Clay - svo að hann geti verið frjáls ferða sinna þangað til að aðalmeðferð hefst í máli hans. Ætla má að Clay verði ákærður fyrir gróf eignaspjöll, sem telst alvarlegur glæpur vestanhafs. Myndbandið af skemmdarverkum Clay má sjá hér að neðan.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira