Hlutur prentmiðla af auglýsingafé sem auglýsendur verja með milligöngu birtingarhúsa fór enn minnkandi á síðasta ári. Prentmiðlar halda þó velli sem stærsti auglýsingamiðillinn með um 28 prósent en þetta hlutfall hefur minnkað jafnt og þétt frá 2014 þegar það var 37 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjölmiðlanefnd. Hlutur sjónvarps hefur einnig farið minnkandi og var um fjórðungur á síðasta ári en vefmiðlar sækja í sig veðrið þótt þeir eigi enn langt í land með að ná því hlutfalli sem þekkist víða í Evrópu.
Alls fóru tæp 23 prósent til vefmiðla, þar af tæp fimm prósent til erlendra vefmiðla. Auglýsingar sem keyptar eru milliliðalaust eru ekki inni í þessum tölum.
Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður Vinstri grænna, segir umræðuna um rekstrarumhverfi fjölmiðla of oft snúast um áfengisauglýsingar og RÚV á auglýsingamarkaði. Hið fyrra sé lýðheilsumál sem ekki eigi að blanda í þá umræðu. Þá mætti nýta auglýsingatekjur RÚV til að efla fjölmiðla almennt.
Hann segir það löngu tímabært að fram komi tillögur til að taka á rekstrarvanda fjölmiðla. „Það er búið að greina umhverfi fjölmiðla í bak og fyrir. Nú þurfum við aðgerðir.“
Auglýsingafé til prentmiðla fer enn minnkandi
Sighvatur Arnmundsson skrifar

Mest lesið

Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný
Viðskipti innlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka
Viðskipti innlent


Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent


Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent

Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent
Viðskipti erlent

Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura
Viðskipti innlent