Svona er tilfinningin Unnsteinn Manuel Stefánsson skrifar 20. júlí 2018 15:00 Ég bý og er uppalinn í miðbænum. Eins og flestir í þessu hverfi hef ég nokkrum sinnum kosið VG. Í þessu hverfi er það jafn eðlilegt og fyrir Garðbæinga að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Foreldrar okkar, hipparnir, hafa kosið þetta afl í einhverri mynd, og við höfum haldið því áfram. Oftast.Undanfarin ár talar maður frekar um að kjósa Kötu heldur en flokkinn sjálfan. Og það er dálítið lýsandi fyrir pólitíkina á Íslandi. Við kjósum gott fólk. Og stjórnmálamenn þykja misgóðir eftir hverfum. Við tölum um „Icehot 1“ í Sundhöllinni, á meðan að í Ásgarði er talað um Skatta-Kötu. En það tengist líka mynstri sem við sjáum allt um kring í samtímanum. Einstaklingar orðnir að vörumerkjum. Stjórnmálaflokkar eru ekki hátt skrifuð vörumerki alveg eins og hljómsveitir eru í útrýmingarhættu. XXX Rottweiler heita allt í einu Jói Pé og Króli rétt eins VG heitir Kata Jak. Á meðan að stjórnmálafólk keppist við að sannfæra okkur um hversu gott það sé, þá þarf það ekki að vinna vinnuna sína. Ég held að íslenskir stjórnmálamenn hafi aldrei verið jafn aftengdir þjóðinni. Hvort sem við tölum um vilja fólksins eða kjör almennra borgara. Það er mjög alvarlegt mál. Þegar ég var lítill var mér tjáð að á Íslandi væri ekki stéttaskipting. Það er kjaftæði, hún meira að segja eykst. En á meðan virðist þingið aðallega vera spá í því hvort mér sé treystandi til þess að nefna barnið mitt alveg sjálfur. Haha. Að lokum, talandi um það. Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta. Nú hafið þið algjörlega ofboðið mér. Sérstaklega VG. Eftir +-3 vikur eignast ég mitt fyrsta barn og fæ að heyra það í dag að þið séuð að fljúga verðandi mæðrum norður á land. Er ekki í lagi með ykkur? Ætlar þú Katrín Jakobsdóttir endanlega að rústa heilbrigðiskerfinu fyrir hönd Bjarna Ben? Rúsínan í pylsuendanum er svo auðvitað að bjóða einum helsta rasista Norðurlandanna í partý á Þingvöllum og kunna ekki einu sinni að biðjast afsökunar á því. Þið megið skammast ykkar margfalt. Þetta er ekki bara móðgun við alla krakkana af erlendum uppruna sem munu ekki kjósa ykkur aftur heldur móðgun við íslensku þjóðina í heild sinni. Já krakkar mínir, svona er tilfinningin að vera af erlendum uppruna og eiga von á barni á alvöru Íslandi, ekki séð úr fílabeinsturninum við Austurvöll. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Um mennsku og samfélag Bolli Pétur Bollason skrifar Skoðun Er rúmdýnan þín hægt og rólega að murka úr þér líftóruna? Gunnar Dan Wiium skrifar Skoðun Sársaukafull vaxtarmörk Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi Miðflokksins Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Tölum íslensku Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Er Miðflokkurinn fyrir ungt fólk? Anton Sveinn McKee skrifar Skoðun Svarar ekki kostnaði að bjarga sjálfum sér Kári Helgason skrifar Skoðun Um orkuskort, auðlindir og endurvinnslu Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Er padda í vaskinum? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar Skoðun Rannsökum og ræðum menntakerfið Kolbrún Þ. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæra sig ekki um evruna Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til fjölmiðla Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Horfið á möguleikana í samfélagslegri ábyrgð Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Aftur til fortíðar Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Að kjarna orku þjóðar Ísak Einar Rúnarsson skrifar Skoðun Orðræða seðlabankastjóra veldur mér áhyggjum Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar Skoðun Það er verið að hafa okkur að fíflum. Davíð Bergmann skrifar Skoðun Útboð á Fjarðarheiðargöngum Hildur Þórisdóttir skrifar Skoðun Hvert á að fara með íslenskt þjóðfélag? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Svikin loforð gagnvart börnum? Hildur Rós Guðbjargardóttir skrifar Skoðun Að búa til steind getur haft skelfilegar afleiðingar! Elínrós Erlingsdóttir skrifar Skoðun Hvar eru sálfræðingarnir? Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Íslenska er ekki eina málið Lilja Magnúsdóttir skrifar Skoðun Hvar er grunnskólinn? Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Er lýðræðislegt að senda vopn til Úkraínu? Hildur Þórðardóttir skrifar Skoðun Það á ekki að vera dekur að geta sótt sér sálfræðiþjónustu Ólafía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Um bókun 35, EES samninginn, Evrópusambandið og Bretland Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Húsnæði fyrir fólk, ekki fjárfesta Gísli Rafn Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Neikvæð samskipti barna og ungmenna á samfélagsmiðlunum Þórarinn Torfi Finnbogason skrifar
Skoðun Flogið á milli landa á endurnýjanlegri orku: Draumsýn eða Raunveruleiki? Gnýr Guðmundsson skrifar