Lífið

Nicki Minaj ræddi umdeilt lag við Colbert og gerði hann orðlausan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Stórskemmtilegt viðtal þar sem allt er látið flakka.
Stórskemmtilegt viðtal þar sem allt er látið flakka.
Rapparinn Nicki Minaj var í vikunni gestur hjá spjallþáttastjórnandanum Stephen Colbert þar sem hún fór yfir nýjustu plötuna sem ber nafnið Queen.

Eitt lag á plötunni hefur vakið mikla athygli og er það lagið Barbie Dreams en þar nefnir hún mjög fræga einstaklinga til sögunnar og lætur þá einfaldlega heyra það. Um er að ræða þá Drake, 50 Cent, Myke Tyson, DJ Khaled, Meek Mill, Odell Beckham Jr. og fleiri.

Kynlíf kemur töluvert við sögu í textanum hjá Minaj og virðist hún ekki vera neitt sérstaklega spennt að eyða einni nótt með umræddum mönnum. En svo virðist sem að þeir hafi í raun reynt við hana, ef marka má textann.

Colbert spurði tónlistarkonuna einfaldlega hvernig hann kæmist sjálfur á svona lista og hún samdi skemmtilega línu tileinkaði Colbert strax á staðnum.

Viðtalið við Nicki Minaj má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.