Trump hefur farið mikinn á Twitter síðustu sólahringa vegna fréttar CNN-fréttastöðvarinnar frá því í síðasta mánuði um að hann hafi mögulega vitað af fundi sem sonur hans, tengdasonur og þáverandi kosningastjóri áttu með Rússum í Trump-turninum sumarið 2016. Þeim hafði verið lofað skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton, forsetaframbjóðanda demókrata.
Lanny Davis, lögmaður Michaels Cohen, fyrrverandi persónulegs lögmanns Trump, hafði gefið í skyn að Cohen gæti gefið upplýsingar um að Trump hefði vitað af fundinum fyrirfram, þvert á það sem forsetinn hefur fullyrt. Davis hefur síðan dregið í land.
CNN hefur engu að síður sagst standa með upphaflegri frétt sinni. Í henni hafi ekki verið fullyrt að Trump hafi vitað af fundinum heldur aðeins að Cohen hefði sagt saksóknurum að hann hafi vitað til þess. Davis hafi ekki verið eini heimildarmaðurinn sem fréttin byggði á.
Málið hefur verið Trump efniviður í áframhaldandi árásir á CNN og fjölmiðla í heild sem hann hefur ítrekað kallað „þjóðníðinga“. Kallaði Trump meðal annars eftir því að Jeff Zucker, forseti CNN, yrði rekinn í einu tísta sinna í dag.
„CNN er að rifna í sundur innan frá vegna þess að þeir voru gripnir í meiriháttar lygi og neita að viðurkenna mistök. Hroðvirknislegi [Carl Bernstein], maður sem lifir í fortíðinni og hugsar eins og úrkynjað flón, skáldar upp frétt eftir frétt, er aðhlátursefni um allt land! Falsfréttir,“ tísti Trump í gær.
CNN is being torn apart from within based on their being caught in a major lie and refusing to admit the mistake. Sloppy @carlbernstein, a man who lives in the past and thinks like a degenerate fool, making up story after story, is being laughed at all over the country! Fake News
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 29, 2018
Blaðamaðurinn tók gagnrýni forsetans ekki þegjandi og sagðist hafa helgað sig því að varpa ljósi á sannleikann í tíð ríkisstjórna beggja flokka.
„Engar háðsglósur munu draga úr skuldbindingu minni við það markmið sem er grundvallarhlutverk frjálsra fjölmiðla. CNN stendur við frétt sína og ég stend við fréttaskrif mín,“ tísti Bernstein á móti.
.@realdonaIdtrump- I have spent my life as a journalist bringing the truth to light, through administrations of both parties. No taunt will diminish my commitment to that mission, which is the essential role of a free press. @CNN stands by its story, and I stand by my reporting.
— Carl Bernstein (@carlbernstein) August 30, 2018
Í viðtalinu við fréttamanninn Lester Holt viðurkenndi Trump að raunverulega ástæðan fyrir því að hann rak Comey hafi verið Rússarannsókn FBI. Rannsóknin beinist að því hvort að forsetaframboð Trump hafi átt í samráði við Rússa fyrir forsetakosningarnar árið 2016.
Trump tísti í morgun um að NBC væri versti fjölmiðillinn á eftir CNN.
„Þegar Lester Holt var gripinn við að eiga við upptökuna mína um Rússland þá særðust þeir illa!“ skrifaði forsetinn.
What's going on at @CNN is happening, to different degrees, at other networks - with @NBCNews being the worst. The good news is that Andy Lack(y) is about to be fired(?) for incompetence, and much worse. When Lester Holt got caught fudging my tape on Russia, they were hurt badly!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) August 30, 2018
Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá hluta af viðtali Holt við Trump í fyrra þar sem forsetinn segist hafa haft Rússarannsóknina í huga þegar hann rak Comey.