Lífið

Róbert fór á skeljarnar inni í Þríhnúkagíg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Róbert Wessman forstjóri Alvogen.
Róbert Wessman forstjóri Alvogen. Vísir/eyþór
Róbert Wessman og Ksenia Shakhmanovu eru trúlofuð en hann greindi frá því á Facebook-síðu sinni í gær.

Róbert hefur verið fyrirferðamikill í íslensku viðskiptalífi í mörg ár og er hann í dag forstjóri lyfjafyrirtækisins Alvogen.

„Elsku vinir. Ég er núna trúlofaður Ksenia, þessari ótrúlegu konu. Ég bað hennar inni í fjögur þúsund ára eldfjalli hundrað metrum ofan í jörðinni. Við höfum nú staðfest ást okkar á hvort öðru,“ segir Róbert á Facebook en hann bað Kseniu inni í Þríhnúkagíg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.